EDIT2: RCA mun halda þennan leikdag, sjá nánar póst neðar á síðunni! Mér þykir það innilega leitt en því miður sjáum við okkur ekki fært að halda þennan leikdag að svo stöddu.
Þeir sem hafa þegar greitt árgjaldið eftir þessa tilkynningu og ætluðu að keyra á föstudaginn og vilja fá endurgreitt skulu senda tölvupóst á rca@internet.is með upplýsingum um nafn og kennitölu greiðanda ásamt reikningsnúmeri sem hægt er að endurgreiða á.
Bestu kveðjur og enn og aftur þykir mér þetta mjög leitt! Sérstaklega að vekja upp falskar vonir.
IngimarÁ föstudagskvöldið (11. júlí) kl. 19:00-22:00 verður haldinn leikdagur á vegum Rallýkrossdeildar AÍH (RCA).
Fyrirkomulagið verður með svipuðu sniði og áður hefur verið:
Einn bíll keyrir í einu á brautinni
Hver bíll keyrir 5 hringi í einu
Það sem þarf til að mega keyra:
Hjálmur
Tryggingarviðauki fyrir akstur á Rallýkrossbrautinni
Gilt ökuskírteini
Bifreiðar verða að vera skoðaðar
Kvittun fyrir greiðslu árgjalds RCAAllir gildir meðlimir RCA mega keyra á föstudagskvöldið og árgjaldið í RCA er kr. 1500,- og þarf að greiða fyrirfram á reikning nr. 0537-14-609115, kennitala 480191-1539. Munið að prenta út kvittun og koma með! Skráningareyðublað fyrir inngöngu í deildina verða svo á staðnum.
Hér er kort af leiðinni fyrir þá sem ekki rata:
Við biðjum þá sem ætla ekki að keyra vinsamlegast að leggja ekki í pittnum! Það eru næg bílastæði fyrir utan pittinn og hinum megin við brautina:
Nánari upplýsingar veitir undirritaður í síma 895-6342, netfang
iar@pjus.is eða í PM.