Author Topic: Leikdagur No. 8. Sunnudaginn 1 Júní 2008 Akstursbraut.is  (Read 1258 times)

Offline F2

  • In the pit
  • **
  • Posts: 67
    • View Profile
Sunnudaginn 1. Júní þá ætlum við að hafa brautina opna.

Þannig að núna er um að gera að ná sér í Tryggingarviðauka.

En annars er bara stöðluð auglýsing.

Sunnudaginn 1. Júní verður leikdagur á Akstursbrautinni.
Við munum hafa opið frá 13-17.

Þar mun fólk geta leikið sér og lært inn á bílana sína.

Ökumenn þurfa að framvísa gildu ökuskýrteini.

Gjald fyrir að aka er 5000 kr. meðlima gjald og síðan verður 1000 kr. gjald fyrir hvern dag eftir það.
Það er engin undanþága frá þessari reglu.

Þeir sem ætla að taka þátt verða að koma með tryggingarviðauka og undirritaða þáttökuyfirlýsingu, og peninginn eða kort.
Og ekki gleyma hjálminum. Líka þeir sem ætla bara að fá far verða að muna eftir hjálminum.

Ef menn lenda í vandræðum við að rata þá hringið í mig í síma 897 1020.


Þáttökuyfirlýsing

Þátttökuyfirlýsing vegna æfingar í brautarakstri
sem fram fer á Akstursbrautinni árið 2008.


Undirritaður ökumaður lýsir því hér með yfir að hafa lesið reglur þær sem gilda um æfinguna og samþykkir að fara eftir þeim í einu og öllu.
Undirritaður gerir sér grein fyrir þeim hættum sem fylgja akstri á brautini og tekur alfarið þátt í henni á eigin ábyrgð.
Undirritaður staðfestir með undirritun sinni að gera engar kröfur á hendur umsjónamanni brautarinnar,
landeiganda né heldur þeim er stjórna leikdeginum vegna mögulegs tjóns sem hann kann að verða fyrir í keppninni - hvort heldur um er að ræða eigna- eða líkamstjón.
Ef ökumaður veldur tjóni á brautinni eða umhverfi hennar er ökumaður ábyrgur fyrir því og verður að laga það.


______________________________________
Nafn ökumanns

___________________
Kennitala

_____________
Bílnúmer

____________ ____________________
GSM númer og e-mail


(vegna ökumanna sem er yngri en 18 ára)
Undirritaður forráðamaður ökumanns samþykkir ofangreinda skilmála og gefur samþykki fyrir þátttöku viðkomandi.


_____________________________________
Nafn forráðamanns

_____________________
Kennitala
_________________

« Last Edit: May 28, 2008, 16:54:21 by F2 »
Fannar Þ. Þórhallsson

Porsche 944 '86 *Turbo Project*
Porsche 924 *TwoTone*
Porsche 2x 944S2
Porsche 2x 924 Turbo
Porsche 911 C4 *Yellow*
Porsche 928S STROSEK
Porsche 944 QT *Konumobile*

Offline F2

  • In the pit
  • **
  • Posts: 67
    • View Profile
Re: Leikdagur No. 8. Sunnudaginn 1 Júní 2008 Akstursbraut.is
« Reply #1 on: May 29, 2008, 12:07:38 »
Eins og sést þá sóma amerískar græjur sig vel út í brautinni 8-)
Fannar Þ. Þórhallsson

Porsche 944 '86 *Turbo Project*
Porsche 924 *TwoTone*
Porsche 2x 944S2
Porsche 2x 924 Turbo
Porsche 911 C4 *Yellow*
Porsche 928S STROSEK
Porsche 944 QT *Konumobile*