Kvartmílan > Alls konar röfl

MÓTMÆLI!!!!

<< < (3/3)

Valli Djöfull:
Ok ok, ég held áfram að svara :)  Ef þú mátt hafa skoðun, þá hlít ég að mega hafa mína skoðun  :wink:

Endilega skoðaðu þetta
http://www.mbl.is/mm/frettir/sjonvarp/?fl=0;media_id=16832;play=1
Mat þurfum við, matur er nauðsynjavara og við lifum ekki án matar..  Hins vegar er bensín munaðarvara og við getum alveg lifað án bensíns..  Eða allavega minkað við okkur í bensínnotkun..  En hins vegar er ekki auðvelt að minka matarneyslu mikið.. 

Matvörur hafa hækkað fáránlega undanfarið og það skiptir mun meira máli að ná því niður en bensínverði að mínu mati.  Það má kannski fikta eitthvað í þessum vökulögum en ég vil samt ekki að þeir fái að keyra Reykjavík - Akureyri án þess að stoppa..  Ég stoppa á þeirri leið nánast undantekningarlaust svo ég sé ekki hvað er að því að þeir geri slíkt hið sama.  En hins vegar skil ég jú að það sé frekar svekkjandi að ÞURFA að stoppa uppi á Holtavörðuheiði því tíminn sé útrunninn..  Ég er alveg tilbúinn að samþykkja að í undantekningartilvikum sé leyfilegt að keyra að næsta stoppustað.  Og jú það væri ekki vitlaust af ríkinu að útbúa salernisaðstöðu og fleira fyrir þá á þessum tilteknu stoppistöðum.

En bensínverið fer upp sama hvað við gerum.  En jú eins og þú segir er kannski hægt að hægja örlítið á hækkun en ekki mikið..

--- Quote ---Tunnan (159 lítrar c.a.) kostaði 8 dollara í Janúar árið 1998
Tunnan (159 lítrar c.a.) kostar 115 dollara 16. Apríl 2008

Miðað við gengi dagsins í dag:
1998 = 604 kr.
2008 = 8.689 kr.

Og olíuverðspámenn segja víst að tunnan muni fara yfir 200 dollara í ár..
--- End quote ---

Bensín hefur hækkað, Björn Bjarnarson getur lítið gert í því?  Hvað nákvæmlega er það sem hann gerði vitlaust?  Og hvað á hann að gera?
Toni, þú svarar alltaf svo furðulega, aðallega í því að drulla yfir aðra í stað þess að segja hvað þú meinar :)

Jón Þór Bjarnason:

--- Quote from: Jón Þór Bjarnason on April 24, 2008, 21:51:43 ---
--- Quote from: TONI on April 24, 2008, 21:38:07 ---Þett lýsir hversu aumir karakterar eru í þessum klúbb, vona að þið verðir bensínlausir á miðri braut í sumar, gott að sjá áhugamenn um mótorsport sýna hversu læikir þið eruð þeim ómerkilega karakter Birni Bjarnasyni, já og Valli, þú kemur frekar mikið á óvart með að "vita" ekki hverju er verið að mótmæla, sér kannski ekki vandan frekar en Björn.

--- End quote ---
Ég veit ekki hvort þú vitir það Anton en akkurat núna ert þú að rakka niður klúbbinn og félaga hans. Það stendur í lögum KK að 4. 3. Stjórnin skal hafa rétt til að víkja mönnum úr félaginu ef þeir vinna bersýnilega á móti félaginu eða skaði heild félagsins. Sá sem í hlut á skal hafa rétt til að skýra mál sitt áður en brottvikning á sér stað. Að því loknu skal stjórnin taka ákvörðun um brottvikninguna. Brottvikning skal vera skrifleg.
Vona að þú sjáir sóma þinn í að tala fallega um klúbbinn og hans félaga á þessari síðu.

--- End quote ---
Ég var nú bara að fíflast og snúa upp á hina hendina á þér Anton. Þú varst eitthvað svo reiður að ég ákvað að setja smá olíu á bálið.  O:) :smt064

TONI:
Valli, veit allt með það að Björn Bjarnason stjórnar ekki heismarkaðsverði á olíu en hann of fleiri getað minkað þau gjöld sem eru á þessu allavegana tímabundið. Ríkið er jú komið með fast gjald á eldsneyti en VSK og tollar eru mikið hærri s.s krónutalan. Þar er hægt að gera eitthvað. Þú mátt aka um á þínum Yaris en ég hef bara ekki áhuga á að spara þegar kemur að öryggi fjölskyldu minnar, það er jú víst munaður.

Valli Djöfull:
Jæja, eins og ég sagði vissi enginn hverju var verið að mótmæla..  Það var verið að mótmæla háu bíómiðaverði en ekki bensínverði  :lol:

http://www.visir.is/article/20080425/FRETTIR01/890654025

Racer:
í gær voru menn að mótmæla ofbeldi lögreglu í garð almennings.

ætluðu að planta sér fyrir utan lögreglustöðvarinar en endaði með að sýna svo stuðning við bílstjóra við kirkjusand.

Navigation

[0] Message Index

[*] Previous page

Go to full version