Author Topic: Ein með öllu  (Read 3815 times)

Offline ADLER

  • Staged and NOS activated
  • *****
  • Posts: 836
  • Drive on....
    • View Profile
Ein með öllu
« on: March 05, 2008, 00:55:14 »
Jón bóndi í Útnára hafði aldrei verið giftur, en var í gær að fá til sín eina Thælenska úr póstlistanum "Einn með öllu". Hann veit ekki alveg hvernig hann á að umgangast dömuna og ákveður að hringja í póstlistann, en
fyrir slysni ruglast hann á símanúmerum og fær samband við tölvubúðina "Ein með öllu".
Heyrum nú hvað þeim fór á milli:

Sölumaður (S)
Jón bóndi (J)

RING RING
S: "Ein með öllu" góðan daginn,
J: Já, góðan daginn. Ég fékk hjá ykkkur "Eina" núna um daginn og ég er í helvítis brasi með hana. Ég kann bara ekkert á hana. Ég held að hún sé tælensk...

S: Neiii.. Það getur ekki verið. Ef þú hefur fengið hana nýlega þá hlýtur hún að vera frá Kóreu. Hvað heitir hún annars?

J: Hún heitir Hí un Dæ, held ég. Hún er allavega með merki framan á sér sem á stendur. Hí un Dæ.

S: Já, Hyundai, það getur passað. En hvaða vandræði eru með hana?

J: Ég er búin að vera að berjast við að reyna að koma henni af stað í allan dag en ekkert gengið.

S: Ertu búinn að taka hana úr umbúðunum?

J: Já, hún stendur hérna alveg "nettó "fyrir framan mig og ég bara veit ekkert hvað ég á að gera næst.

S: Mér finnst nú alltaf best að hafa þær uppi á borði þegar ég nota þær. Annars þreytist maður svo fljótt í bakinu.

J: Jááá þú segir nokkuð. Ég skelli henni þá upp á borð!

S: Gott, svo sestu framan við hana og athugar hvort hún sé orðin heit.

J: Ég er búin að þreifa aðeins á henni og hún er bara sæmilega volg víðast hvar.

S: Hvernig týpa er þetta annars? 486?

J: Tja- 6 og ekki 6.Það sem ég var með í huga var bara svona venjulegt sex allaveganna til að byrja með. Það er aldrei að vita hvað maður gerir svona seinna meir.

S: Þú segir að hún sé orðin volg, já Þá skaltu grípa um músina, og færa hana rólega þangað til að "bendillinn" er kominn þangað sem þú vilt.

J: Grípa um músina? Er það nú ekki svolítið ruddalegt svona rétt á meðan við erum að kynnast?

S: Nei nei. Það er alveg nauðsynlegt að vera liðugur á músina þannig að þú fáir það sem þú vilt.

J: Jæja , það skal þá þannig vera, en heyrðu, það er allt fullt af hárum á músinni !

S: Klikkaðu undir hana og blástu svo á hana. Það ætti að duga. Hvernig er annars minnið í henni?

J: Tja, það hefur nú lítið reynt á það ennþá hún kom nú bara í gær

S: Þú ert náttúrulega með harðan? Er það ekki?

J: Harðan. Jú, og ég er búinn að vera með hann lengi. Loksins er ég búinn að fá eitthvað til að setja hann í!!!

S: Hvað er hann stór?

J: Stór??? Hann er svona í góðu meðallagi! ! ! !

S: O.K. gott, þeim mun stærri því meiru getur þú hlaðið á hann. Segðu mérannað, hvernig drif er á henni?

J: Hvað meinar þú með drif??????

S: Sérðu ekki rifu framan á henni? Það er drif.

J: Já, ég sé smá rifu en ég er vanur að kalla hana allt öðrum nöfnum

S: Já, rifan er til þess að bæta í hana einu og öðru. Þú stingur bara floppinum inn og svo er það bara "run" og "enter".

J: Run? Þarf það???? Ég er nú ekki með það stórt herbergi að ég geti verið að hlaupa mikið en ENTER það get ég!


S: Svo veistu að þú getur tekið pásu hvenær sem er því að sá harði geymir allt saman eins lengi og þú vilt, nema náttúrulega að hún krassi á þig !!!

J: Krassi á mig? Eiga þær það til líka? Ég get nú bara ekki hugsað þá hugsun til enda.

S: Ef hún krassar þá getur sá harði skemmst.

J: Það hlítur að vera ósköp sárt! ! ! ! !

S: Enn hvað ætlar þú að gera við hana? Í hvað ætlar þú að nota hana?

J: Ég var nú aðallega að hugsa um að leika mér að henni meðan ég er að kynnast henni. Svo fer ég að nota hana í eitt og annað nytsamlegt.

S: Það er upplagt að láta hana sjá um bókhaldið. Það er um að gera að nýta möguleika hennar á öllum sviðum eins og maður getur.

J: Segðu mér eitt, er ekki óhætt að treysta þeim?

S: Jú, jú, þær eru nokkuð öruggar.

J: Hvað finnst þér um hana? Heldur þú að hún sé ekki bara nokkuð góð? Hún Hí un Dæ???

S: Jú, ég er búinn að skoða þær margar, og þessi er örugglega þrælgóð. Þú þarft náttúruleg að vita að þær úreldast fljótt. Þú kemur bara með hana niðureftir og uppfærir í eina nýja. Við tökum þá gömlu uppí! ! !

J: Það er ekki að spyrja að því. Toppþjónusta sem þið veitið...

S: Já, við leggjum okkur fram við að veita kúnnanum góða þjónustu. Margir skipta á svona tveggja ára fresti.

J: Heyrðu, ég þakka þér bara kærlega fyrir hjálpina. Nú er ég tilbúinn til þess að hjóla í hana..
S: Gott hjá þér, og ef þú lendir í frekari vandræðum þá skal ég koma á staðinn og hjálpa þér.
Það er ágætt að vera með nokkrar lausar skrúfur.
Adler Stevens  543 4200
*****************
Support your Local Mechanic
Buy a Ford .
*****************

Ashes to ashes
Dust to dust
If it wasn't for Fords
Our tools would rust.
***************

Offline Belair

  • Doing 20ft wheelies
  • ******
  • Posts: 3.325
    • View Profile
    • Alli´s Icelandic Firebird Page
Ein með öllu
« Reply #1 on: March 05, 2008, 01:03:23 »
:smt043
Trans Am 84 350rwhp Ls1 T56
Legacy 99
Haase 128

Benedikt H Jóhannsson KK#2010 FBI#3341

Offline villijonss

  • Pre staged
  • ****
  • Posts: 264
    • View Profile
Ein með öllu
« Reply #2 on: March 05, 2008, 01:05:01 »
góður :)
ford er málið !!
Vilhjálmur Jónsson
Real Race cars have paddle tires

Offline Racer

  • Staged and NOS activated
  • *****
  • Posts: 2.464
    • View Profile
Ein með öllu
« Reply #3 on: March 05, 2008, 01:11:23 »
Hyundai klikkar ekki
Davíð Stefánsson
KK Member 2015 #857

Offline edsel

  • Staged and NOS activated
  • *****
  • Posts: 2.041
    • View Profile
Ein með öllu
« Reply #4 on: March 05, 2008, 14:12:58 »
:smt042  :smt042  :smt043  :smt043  :smt005 :smt005
Sindri Freyr Pálsson
BMW E30 318 IS vél '87 seldur  :smt010
Toyota Touring '89 klesstur
Hyundai Sonata '95 seldur :D
Ford Bronco II '88 daily driver :D :D :D :smt093

Offline einar350

  • In the pit
  • **
  • Posts: 87
    • View Profile
Ein með öllu
« Reply #5 on: March 05, 2008, 16:01:23 »
hahahah  :lol:  góður
Einar Páll Þórisson
                         
Firebird Formula 1994 Seldur
Dodge Durango 2002

Offline DÞS

  • Pre staged
  • ****
  • Posts: 313
    • View Profile
Ein með öllu
« Reply #6 on: March 06, 2008, 16:01:52 »
hahahaha
Davíð Þór Sævarsson

PONTIAC FIREBIRD TRANS-AM LQ9 408
1/4 10.5 @ 139 mph
www.youtube.com/d4bb1

Offline Frikki...

  • Staged and NOS activated
  • *****
  • Posts: 608
    • View Profile
Ein með öllu
« Reply #7 on: March 07, 2008, 15:45:47 »
hahahahaha
Audi A4 B5 (soon2be-turbo) 9bílar seldir
#3168

Offline Gauti90

  • In the pit
  • **
  • Posts: 54
    • View Profile
Ein með öllu
« Reply #8 on: March 22, 2008, 10:18:56 »
hahhaha snilld :D :lol:
Ford Capri GT 74'

Volvo 244GL 81'(Varhlutir Til Sölu)

Chevrolet Blazer s-10 Sport 92'

Offline burger

  • Pre staged
  • ****
  • Posts: 467
    • View Profile
Ein með öllu
« Reply #9 on: March 23, 2008, 21:25:18 »
ýta á hana og blása aðeins hahahah :lol:
Sigurbergur Eiríksson

rieju smx 2004 BlUe edition :D pro

Quote from: "Leon"
Quote from: "Camaro-Girl"
hian eð tij soli ogher itor l aKShofn
:smt030  :smt024

ahaha :D svona gerist ef maður drekkur og spjallar á netinu :D;)

Offline Skari™

  • In the burnout box
  • ***
  • Posts: 241
    • View Profile
    • http://www.camaro.is
Ein með öllu
« Reply #10 on: March 23, 2008, 23:28:21 »
Snilld :lol:
Óskar F. Júlíusson


Chevrolet Camaro Z28 LT4 '95
Buick LeSabre Limited 350 V8 '81
Suzuki RM-Z 250 '05

www.camaro.is