Author Topic: Mercedes-Benz AMG ofurbílasýning ÖSKJU á laugardag  (Read 1904 times)

Offline Valli Djöfull

  • Doing 20ft wheelies
  • ******
  • Posts: 2.714
    • View Profile
Mercedes-Benz AMG ofurbílasýning ÖSKJU á laugardag
« on: February 28, 2008, 16:15:29 »
Fékk senda fréttatilkynningu og langaði að koma þessu hingað :)

Fréttatilkynningin

Quote
AMG ofurbílasýning ÖSKJU, Laugavegi, föstudaginn 29. febrúar og laugardaginn 1. mars
- Stórviðburður á Íslandi

Í dag, föstudag, og á morgun, laugardag, efnir Bílaumboðið ASKJA, Laugavegi, til stórsýningar á lúxus- og sportbílunum Mercedes-Benz AMG. Á meðal sýningargripa verða nýr C 63 AMG, sem skilar 457 hestöflum og er aðeins 4,57sekúndur í hundraðið og S 63 AMG – 525 hestafla lúxubíll.  Einnig verður vinsælasti sportjeppinn í dag kynntur – ML 63 AMG, sem er 510 hestöfl - og tveggja manna sportkerran SLK 55 AMG – 360 hestöfl.

Um AMG
AMG var stofnað árið 1967 og hefur æ síðan hannað ofurvélar í Mercedes-Benz lúxusbifreiðar. Fyrstu tveir stafirnir í nafninu standa fyrir stofnanda fyrirtækisins, Hans Werner Aufrecht, samstarfsmann hans, Erhard Melcher, og fæðingarbæ Aufrechts, Grossaspach.

Á þessum 40 árum hefur mikið vatn runnið til sjávar og starfsumhverfi fyrirtækisins breyst mikið. Árið 1999 yfirtók Daimler-Chrysler rekstur AMG og ber fyrirtækið nú nafnið Mercedes-AMG GmbH. Það byggir á sömu grundvallar gildum og Mercedes-Benz: gæðum, öryggi, þægindum og umhverfisvitund.

Sýningin verður í sýningarsal ÖSKJU, Laugavegi 170, og stendur yfir frá kl. 10-18 á föstudag og frá kl. 10-16 á laugardag.


EDIT:  leiðrétting, hún verður semsagt á föstudag líka  8)
Valbjörn Júlíus Þorláksson - GSM: 820-8488

Offline gardara

  • In the pit
  • **
  • Posts: 84
    • View Profile
Mercedes-Benz AMG ofurbílasýning ÖSKJU á laugardag
« Reply #1 on: February 29, 2008, 13:06:25 »
Glæsilegt.

Ætli maður kíkji ekki ef maður hefur tíma
1991 Chevrolet Camaro Z28
2000 Opel Astra 1.6 [ TIL SÖLU ]