Kvartmílan > Bílarnir og Græjurnar
TA GTA - búið að lækka og komin á 18" felgur... NEW PIC 24.maí
Frikki...:
þetta verður flott hjá þér 8)
Ford Racing:
Hljómar mjög sætt :wink:
Nonni:
Þú ættir að athuga með að kaupa fjórðu kynslóðar sæti frekar en að láta bólstra þau gömlu uppá nýtt og leðra. Fjórðu kynslóðar sætin passa beint í sömu festingar og þarf bara að tengja einn appelsínugulan vír við straum (í gegnum öryggi) og svartan í jörð.
Ég hef keypt svört (ebony) leður sæti úr 2000 og 2002 Transam (öll sætin, fram og aftur) sem er komið í bíla hér heima og báðir pakkarnir komu heim í kringum hundrað kallinn með gjöldum.
Þetta eru miklu flottari sæti en þriðju kynslóðar sætin og þau úr 2002 WS6 Transaminum eru með pumpum í báðum sætum (og að sjálfsögðu rafmagn í öllu).
Ég efast um að þú fáir gömlu sætin leðruð hér heima á betra verði.
JHP:
Jæja til hamingju Gústi og vonandi verður þú sá sem stendur við orðin stóru :lol:
Hvað er þessi fæðing búin að taka mörg ár?
Chevy_Rat:
Já sýndu okkur það úr verki!!!,að þetta verði þetta einhvrentímann að bíl :!:
Navigation
[0] Message Index
[#] Next page
[*] Previous page
Go to full version