Hversu erfitt er bara að hundsa ákveðnar umræður ef þær fara svona herfilega í taugarnar á fólki. Á að ritskoða gjörsamlega allt sem dettur hingað, hver ætli sé tilbúinn a bjóða sig fram í það starf?
Hélt alltaf að KK spjallið væri opið fyrir hvern sem er, um svo gott sem hvað sem er (nú þegar komið er inn dálkurinn "Alls konar röfl")
Það eru margir nýjir notendur og sífellt að detta inn nýtt fólk sem fær áhugan á þessu sporti, þess vegna kannski skiljanlegt afhverju það sé að spyrja um hina og þessa hluti sem kannski hafa verið ræddir hér áður, já ég veit það er "leita" takki en ekki allir sem geta/kunna að nota hann, en þetta er kannski fólk sem kannski eftir einhver ár á eftir að halda klúbbnum uppi.