Kvartmílan > Spyrnuspjall

Hvert er þetta spjall að fara.......???

(1/7) > >>

Kiddi:
Þarf ekki að fara taka til hérna þ.e.a.s. á spjallinu... allskonar bull og þvæla sem mér finnst alls ekki viðeigandi..

Hver er yfir þessu??

ATH.
Póstaði þessu hérna svo ég gæti kanski fengið einhver comment með viti :roll:

Valli Djöfull:
Að mínu mati á ekki að þurfa að eyða innleggjum.  Það virðist hins vegar vera ansi stuttur þráðurinn á mörgum þessa dagana.  Mér finnst mest vanta að menn hittist og spjalli í stað þess að missa sig á netinu, t.d. mættu fleiri mæta á félagsfundi.  Það mættu c.a. 15 manns á síðasta fund sem er kannski allt í lagi mæting en ekki góð þegar miðað er við fjölda meðlima.
Sem gera 0,2% af þeim sem greiddu meðlimagjöld í fyrra ef ég kann en nað reikna :)  Mikið af þessum heitu málum sem rifist hefur verið um hér á spjallinu hefðu mátt fara fram á þessum fundum frekar.

Ég segi að ef fólk mætir á félagsfundi og þorir að ræða þessi mál þar munum við losna við mikið af rugli héðan af spjallinu.  Gerir lítið gagn að eyða bara og eyða þráðum og láta pirring byggjast upp hjá fólki.  Það gerir engum gott hugsa ég :)

Einar K. Möller:
Einu sinni voru admins hérna sem tóku til eins og Á AÐ GERA... en það fór fyrir brjóstið á einum stjórnarmanninum sem varð voða leiður (og reiður) og tók völdin af þeim, síðan þá er þetta allt komið í hundsrass (og það úldinn slíkann)

Ég er MJÖG sammála þér Kiddi... þetta spjall er orðin ný útgáfa af L2C.

EKM

Valli Djöfull:

--- Quote from: "Einar K. Möller" ---Einu sinni voru admins hérna sem tóku til eins og Á AÐ GERA... en það fór fyrir brjóstið á einum stjórnarmanninum sem varð voða leiður (og reiður) og tók völdin af þeim, síðan þá er þetta allt komið í hundsrass (og það úldinn slíkann)

Ég er MJÖG sammála þér Kiddi... þetta spjall er orðin ný útgáfa af L2C.

EKM
--- End quote ---

Er fólk hér virkilega það óþroskað að það þurfi að eyða þráðum  :?   Ég var að vona að svo væri ekki.  t.d. á BMWkrafti er þráðum ALDREI eytt!  Og þess þarf ekki..  Og ég var að vonast til þess að menn á þessu spjalli væri allavega jafnþroskað og fólk á öðrum spjallsíðum.

Einar K. Möller:
Óþroskaða fólkið eru þeir sem skrifa upp þess helvítis vitleysu sem þarf að eyða.

Það þarf líka að taka svolítið til í þessu og sérstaklega er það pirrandi þegar menn eru að selja eitthvað og auglýsa ónýta edelbrock blöndunga og ónýta vökvaásinn úr 302 vélinni sem þér FANNST virkar svo vel o.sv.frv í Kvartmíludót til sölu, og setja sömu auglýsinguna útum allt spjall.

Þetta komið í óefni og þarf að hrista aðeins upp í þessu.

Navigation

[0] Message Index

[#] Next page

Go to full version