Author Topic: Nokkrir hlutir !!!! (Mazda 323)  (Read 1613 times)

Offline Antonst

  • Playing NHRA on playstation
  • *
  • Posts: 29
    • View Profile
Nokkrir hlutir !!!! (Mazda 323)
« on: January 31, 2008, 01:18:54 »
Málið er það að ég er er með eitt stykki vinnubíl sem er af gerðinni Mazda 323 ´91 módel 1600cc keyrð 260 þús :) en allvega hún virkar mjög vel nema miðstöðin hitnar samasem ekkert, er búinn að prófa að skipta um vatnslás en það gerði ekkert... ég var að pæla hvort einhver þarna úti í stóra heiminum detti ekki eitthvað snjallræði í hug til að laga þetta.

Mér datt í hug hvort það gæti verið að það myndi ekki opnast alveg fyrir hitann þegar maður setur þarna gaurinn í botn í mælaborðinu ? einhver stakk uppá því að það gæti veirð loft inná kerfinu ??? Endilega komið með einhverjar hugmyndir.

Síðan annað vandamál, þegar bílinn er orðinn heitur þar að segja vélin þá á bíllinn það til að drepa á sér þegar ég tek hann úr gír t.d.þegar ég er að hægja á mér áður en ég kem að ljósum, eina sem ég þarf að gera er annahvort að gefa honum smá bensín þegar hann er í hlutlausum eða þá að starta honum bara aftur.  

Einhver sem veit hvað gæti verið að ?


p.s. voandi skiljið þið hvað ég var að skirfa :)