Sælir félagar.
Sæll Kiddi.
Nei þetta á ekki að vera Shelby clone, heldur ætla ég að reyna að gera úr honum eitthvað í líkingu við Mustang race car bílana sem að flestir sjá ekki mun á og Shelby.
Sennilega 90% af þeim bílum af þessari árgerð (1965)sem eru á myndum og/eða menn sjá eru Mustang ekki Shelby.
Það var þá eins og nú að menn keyptu boddý frá verksmiðju til að nota í keppnisbíla, og það sama gerði Shelby, þeir keyptu boddý af Ford og smíðuðu Shelby Mustang [Cobra].
En það skemmtilegasta sem mér þykir með Mustang er að slagorðið var að þetta væri bíll sem væri "hannaður af kaupanda sínum".
Það er að kaupandinn gat ráðið svo miklu um hvernig bíllinn var útbúinn að það voru VARLA tveir bílar eins (hlítur þó að vera vegna þess mikla magns sem var ungað út af þessum bílum 1964-6, rúmlega 1,6mills).
En það er einmitt það sem mig langar að gera við þennan 1965 Fastback, og það er að gera bílinn eins og MIG langar að hafa hann.
Og ég er að vona að það hafist.