Author Topic: Íþróttafréttir...  (Read 1965 times)

Offline Valli Djöfull

  • Doing 20ft wheelies
  • ******
  • Posts: 2.714
    • View Profile
Íþróttafréttir...
« on: December 15, 2007, 19:01:29 »
Quote
Íþróttir
10-15 sek - Örn sundmaður (heimsmeistaramót, gengur vel) ekkert sýnt
1,5 mín Enski boltinn einn leikur
1,5 mín Enski boltinn annar leikur (sýnt úr leik síðan 24. Nóvember og röflað um næsta leik)
1 mín Handbolti kvenna, 2 leikir
1 mín Skoski boltinn, einn leikur
1,15 mín Greindarbolti, fótbolti, ný tækni
15 sek Spænski boltinn


Uppá gamanið skrifaði ég niður "íþrótta" fréttir á stöð 2 í kvöld..

Örn sundmaður, sem er að brillera í útlandi fékk heilar 10 sek af umtali "já það gengur vel hjá Erni.. hahh já.. það er rétt, en nú að enska boltanum..."  :roll:

Og svo boltaíþróttir það sem eftir var af íþróttafréttum..  Af hverju heitir þetta ekki "Fótboltafréttir"?  Það kemst ekkert annað að..  Flott mál að handbolti kvenna hafi fengið að laumast smá þarna inní en annars var þetta bara fótbolti.. t.d. verið að ræða leik sem á að vera á morgun og sýnt frá leik síða 24. nóvember  :lol:

Kannski er það bara ég sem spái í þessu, ég er jú svolítið skrítinn  :wink:   En ástæða þess að ég spái í þessu er sú að þetta er nákvæmlega eins á sumrin, bílaíþróttir og fleiri íþróttir komast ekkert að..  BARA fótbolti  :roll:  Eins og hann er nú drepleiðinlegur..
Valbjörn Júlíus Þorláksson - GSM: 820-8488

Offline Racer

  • Staged and NOS activated
  • *****
  • Posts: 2.464
    • View Profile
Íþróttafréttir...
« Reply #1 on: December 15, 2007, 19:11:49 »
Valli minn kæri.. drífa sig að útrýma þessum helvítis bolta íþróttum sem engin horfir hvort sem á.

við viljum sjá fleiri akstur íþróttir!!!
Davíð Stefánsson
KK Member 2015 #857

Offline Gilson

  • Staged and NOS activated
  • *****
  • Posts: 1.102
    • View Profile
Íþróttafréttir...
« Reply #2 on: December 15, 2007, 19:13:11 »
ég horfi á fótbolta og finnst hann skemmtilegur. En það mætti alveg troða bílaíþróttum þarna inn í á sunmrin :?
Gísli Sigurðsson

Offline User Not Found

  • In the burnout box
  • ***
  • Posts: 179
    • View Profile
Íþróttafréttir...
« Reply #3 on: December 15, 2007, 19:16:47 »
Þetta er bara gallinn við að hafa íþróttafréttamenn í vinnu sem hafa fótbolta sem aðal áhugamál og eru þar af leiðandi hlutdrægir.
Arnar H Óskarsson

Offline 1966 Charger

  • Staged and NOS activated
  • *****
  • Posts: 849
    • View Profile
Íþróttafréttir...
« Reply #4 on: December 15, 2007, 23:51:27 »
Já það ríkir sovéskt og steingelt ástand í íþróttafréttunum og svo hefur verið í áratugi.  
Mér tókst eftir krókaleiðum að fá uppskriftina að stöðluðum útvarpsfréttatíma eins og hann er kenndur í Íþróttafréttamannaskóla ríkisins og frjálsra fjölmiðla (skammstaðað ÍRAFÁR) (Það veit enginn hvernig þeir fengu þessa skammstöfun út) allt frá stofnun skólans.

Hérna er uppskriftin:
----------------------------

5 stykki boltaíþróttafréttir
1 kíló "hann tognaði á nára og var borinn út af" sögur.
1 kúfull skeið af sérleiðatímum úr Finnskaþúsundvatnarallinu eða nákvæmir tímar í skeiði á einhverju Fjórðungsmóti hestamanna.
Tvær vænar lúkur af "ég er íslenskur íþróttamaður að reyna að meika það í útlöndum fréttir."

Nánari leiðbeiningar:

Takið 5 knattspyrnuúrslit. Lesið ekki bara úrslitin heldur verður vel heppnaður íþróttafréttatími að innihalda upplýsingar um hvaðan markaskorararnir eru ættaðir því fólk á heimtingu á að vita að íþróttafréttamenn eru sterkir á svellinu í landafræðinni og sögu einnig. Klikkið út með hversu margir áhorfendur voru til þess að hlustendur viti að þið kunnið að telja auk þess sem sinna þarf þeim fjölmörgu Íslendingum sem halda skrár um áhorfendafjölda. Dæmi: " 67.934 áhorfendur sáu Japanann Sparky Fotbolta skora 5 mörk í HassenGrassenstuhl í Kaiserslautensýslu í Vestur-Ungverska keisaradæminu gamla í gær."

Síðan slengir maður einu kílói af slysa- og hrakfarasögum í tímann til að gera hlustendur meyra og sýna þeim fram á að milljónamæringar sem hafa íþróttir að atvinnu eru mannlegir og geta líka meitt sig eins og múgurinn sem er að hlusta á fréttatímann.  Svona lagað færir hlustendur nær íþróttamanninum og víst er að konur hafa fundið fyrir móðurkennd gagnvart þeim sem fékk meiddi á bágtið, undir slíkum lestri.  Gæta ber að lesa þessar fréttir ekki alveg í sama takti og dánarfregnir og jarðarfarir en samt verður alvaran að heyrast í röddinni. Dæmi um slíka frétt: "Grettir Hreinsson hefur sennilega (leggið áherslu á "sennilega" nema þið hafið röntgenmynd af tánni á borðinu hjá ykkur því við viljum ekki láta hanka okkur á að fara rangt með í slíku stórmáli) brákað hægri litlutá sína þegar hann kom inn á sem varamaður fyrir Dýrin í Hálsaskógi á 89 mínútu í tapleik helgarinnar gegn Latabæ FC."  Gefið skýrt til kynna hversu alvarlegt þetta geti verið en varist þó að segja beint að þetta hafi áhrif á gengi íslensku krónunnar því það gæti valdið óðagoti meðal einhverra jakkafata sem hlusta.

Til að hrista drungan af hlustendum eftir slysasögukaflann er vert að gera þá nú verulega spennta og leyfa þeim að vita um leið að við flytjum fréttir af allskonar íþróttum OG erum nákvæmir í því líka. Hér hafa fréttir af sérleiðatímum í rallý eða nákvæmir tímar úr skeiði á Fjórðungsmótum hesta dugað best.  Varðandi rallið þá skiptir ekki neinu andskotans máli hvaða rallý það er, en þó ber að hafa í huga að fréttir úr Þúsundvatnafinnskarallinu er big news hérlendis, sérstaklega af þriðju sérleiðinni.  Það er bara svona og við vitum ekki af hverju.  Ef hægt er að segja slíka frétt í hádegisfréttatíma á virkum degi þá hljóðnar allt skraf í mötuneytum landsins samstundis, þinghlé verður á Alþingi og jörðin stendur kyrr um stund.  Dæmi:  "Spíttalainen er með þriggja komma 4823 sekúntna forskot á þriðju sérleiðinni í......."  Með þessu móti gerum við ALLA bifreiðaíþróttamenn landsins ánægða á einu betti því að aðrar akstursíþróttir eru nefnilega ekki til.

Til að slá botninn í hvern tíma er vert að gera áheyrendur stolta með fréttum af frammistöðu Íslendinga sem eru að reyna að meika það erlendis í ýmsum einstaklingsíþróttagreinum.  Hér er markmiðið að  kreysta fram þjóðarstoltsblandið tár á hvarmi hlustandans.  Það virðist ekki skipta neinu máli hvernig þessum hetjum hefur gengið því að í huga hlustenda eru þau öll "Winners."  Það er því allt í lagi að nota frasa eins og:  "lauk ekki keppni."  "lenti í 110 sæti af 87 keppendum." "Farangri hans var stolið." "Var meinað að keppa."  "Missti af flugvélinni og gat því ekki tekið þátt." "Gerði allar lyftur ógildar (ath. á bara við um lyftingar). "Komst ekki í mark." "Datt í öllum ferðum risastórsvigsins."  "Tapaði vegna þess að": a) það var of heitt/kalt á hótelherberginu. b) maturinn var mjög vondur (mjög vinsælt) c) æfingataskan með stuttbuxunum fór í ranga flugvél d) dómararnir voru skandall (mjög vinsælt) e) leigubílstjórinn keyrði hann á rangan völl og spilaði Kashanstönsk þjóðlög allan tímann á hæsta styrk í Mono.  Hér er um óendanlega möguleika fyrir afsökunum að ræða en aldrei má þó kenna íþróttamanninum sjálfum um tapið því þá fær maður kannski aldrei að vera memm aftur og buddy systemið fokkast upp.


Ofangreinda uppskrift verður svo að krydda með mögnuðum stöðluðum frösum.  Þessi  hafa virkað best undanfarin 30 ár og verða því notaðir áfram:

...orðið fyrir blóðtöku (það má líka segja "mikilli blóðtöku.").
...laut í gras (hér er um þátíð sagnarinnar að lúta að ræða en ekki laut í grasi). Never mind að þetta er fucked up útgáfa af öðru máltæki sem einn Nestor íslenskra íþróttafréttamanna spítti einu sinni út úr sér og lærissveinarnir hafa tuggið glaðróma alla tíð síðan.
... mætti sterkur til leiks (en ekki hvað?) Þetta er frasi sem getur ekki klikkað.
...haltraði af velli.
.....er ekki í náðinni hjá þjálfara liðsins
....heltist úr lestinni (allt í lagi að nota um annað en hestaíþróttir).  Munið bara að það er eitt "l" í þessu því þetta er komið af "haltur" en ekki að einhver hafi hellst úr lestinni.
... sterkur á svellinu (leyfilegt frá 1973 að nota þetta um fleira en skautaíþróttir og jafnvel í karlmynd ("sterkur") um konur í sleggukasti).
......mætti ofjarli sínum (aths. femínistarnir verða stundum brjálaðar yfir þessum frasa þannig að varast skal að nota þetta um íþróttir þar sem einhverjar kellingar eru að sprikla).
...taka á honum stóra sínum (athugasemd:  Við vitum ekki enþá hver þessi Stóri - Hans er en ef það kemur í ljós að þetta er eitthvað dónalegt þá kannski drögum við eitthvað úr að nota þetta).

Ef ofangreind uppskrift heppnast þá fara áheyrendur í tilfinningalegan rússíbana og vitað er til að fólk hefur fallið í öngvit fyrir snilldinni. Með þessu móti þarf maður heldur ekki að segja fréttir af einhverjum íþróttagreinum sem eru svo ómerkilegar að þær verða ekki nefndar hér.
-------------

Err
66 Charger, 451, .582" lift, 10" conv.  4.10:1. 1868 kg/4118 lbs.
60=1,994, 11,79@114 mph venjuleg Firestone radial dekk.
Íslandsmeistari MC 2007, 2008 og 2009.