Kvartmílan > Alls konar röfl
Tími til kominn á breytingar
Valli Djöfull:
Ég bara hreinlega skil ekki hálft orð af því sem þú ert að reyna að koma frá þér, enda er það aðallega skítkast og kjaftur sem meikar ekkert sens.. :lol:
Svo ég er hættur að taka það nærri mér sem þú skrifar og hættur að hlusta á þig :) Enda finnst mér ég ekki eiga inni neitt skítkast, hef staðið mig eins vel og hægt er og nenni ekki að hlusta á svona vitleysinga :)
Jújú, rétt er það, ýmislegt mætti betur fara en allt strandar þetta á hjálpinni sem ekki virðist vera í boði. Stjórnin vinnur eins og ég veit ekki hvað, ég var tæpur á að missa vinnuna í sumar vegna þess hve mikið ég var að brasa fyrir klúbbinn í stað þess að vinna vinnuna og ég er nokkuð viss um að fleiri í stjórn hafi verið í sömu vandræðum. En á meðan fólk heldur að stjórnin eigi að gera allt gerist ekki rassgat. Sama hve mikið einhverjir vitleysingar væla á netinu.. Það er svolítið sem kallast að vera E-thug..
Nóg af þeim þarna úti og þú ert eitt dæmi um svoleiðis vitleysing Einar minn :) Svo ég er hættur að hlusta á þig :)
Ég er edrú Einar minn svo þetta var skot á þig, þar sem það er varla eitt orð rétt skrifað í textanum hjá þér :wink:
edsel:
ég er hættur að nenna að lesa þennan þráð
Jón Þór:
Til þess að koma þessum keppnum og æfingum á eitthvað hærra plan eða hvetja flr. til þess að mæta (var það ekki umræðan sem þú leitaðir eftir) þá þarf einfaldlega að fá öfluga starfsmenn!
Án þeirra væri þetta ekkert hægt, þannig að ég sé nú ekki nema góða ástæðu til þess að ræða það eitthvað....
Nokkrar góðar hugmyndir sem hafa komið hérna fram. Rukka þá sem mæta á æfingar um þúsundkall og frítt fyrir þá sem ætla að keppa. Það er eitthvað sem gæti virkað. Þarf þá bara að passa að rukka þá á æfingunni svo þeir mæti í keppni.
Ef það á að borga starfsfólki síðan eins og var talað um þá er gott að gera það einmitt með einhverjum svona "styrkjum" passa bara að það sé skothelt, hef lennt í smá leiðindum með skattinn í svipuðu dæmi.
Grunnurinn á bakvið þetta allt saman er einmitt staffið! Það er ekkert leiðinlegra en öll biðin sem myndast þegar ekki er nóg staff á bakvið keppni. það kom alveg fyrir í sumar og fældi ábyggilega einhverja frá.
Það eru góðar hugmyndir að þróast hérna.... Haldið þessu áfram!
Og sem meðlimur vil ég bara þakka þeim sem komu í sumar og stóðu sig vel í staffinu. keep it up næsta sumar! ;)
maggifinn:
allar breytingarnar sem þurfa að eiga sér stað er að hægt sé að sækja um keppnisleyfi fyrir seasonið í heild sinni hjá viðkomandi sýslumannsembætti, hvort heldur sem um ræðir kvartmílukeppnir eða sand, fyrir norðan eða sunnan.
þegar hlutirnir eru orðnir svoleiðis er hægt að taka mark á keppnisdagatali. og þá vil ég meina að þessir hlutir sem verið er að ræða hér lagist að sjálfu sér
Auðvitað eru og verða alltaf rigningarkeppnir, en það er ekkert hægt að gera við því annað en að þurfa ekki að klára keppnisdagatalið á haustinu. Langmest af vandræðum klúbbsins má rekja til þeirra sem hafa keppnisleifin í gíslingu, það er engan fyrirvara hægt að hafa á keppnum, það er vont fyrir staff, keppendur og áhorfendur.
Þetta sýndi sig best nú í síðustu keppni sumarsins sem var sú eina sem hægt var að auglýsa því það fékkst fyrir henni leyfi með smá fyrirvara (alltof seint þó að mínu mati)
Sunnanmenn geta ekki boðið Norðanmönnum uppá keppnir sem ekki fæst leyfi fyrir fyrr en á hádegi föstudags. Þegar við keppum fyrir Norðan líka þá ætla ég rétt að vona að hlutirnir verði ekki svoleiðis ennþá. Ég tek ofan fyrir þeim sem leggja þetta á sig að koma 400km í blindni um keppnisleyfi.
Jón Þór:
Það er auðvitað hárrétt líka!
Navigation
[0] Message Index
[*] Previous page
Go to full version