Kvartmílan > Keppnishald / Úrslit og Reglur
Umræðan um reglubreytingar
1966 Charger:
Jæja þá er umræðan árlega um reglubreytingar komin af stað. Ég er að spá í hvort hægt væri að gera einhverskonar viðmið sem gerir okkur færari um að meta hvort breytingartillaga sé til góðs FYRIR KVARTMÍLUÍÞRÓTTINA (en ekki einstaka bílategundir/keppendur). Ég tel að keppnishaldarar verði að byggja tæknireglur á ákveðnum grunnviðmiðumsem auka vöxt íþróttarinnar Ef að keppnishaldarinn setur fram skýrar forsendur fyrir reglum/reglubreytingum þá dregur það líka úr regluþrasinu árlega. Hér er mín hugmynd um slík viðmið. Ég tel semsagt að reglur/breytingartillögur sem auka líkurnar á að eitt eða fleiri eftirfarandi atriði verða að veruleika séu til góðs fyrir íþróttina:
a) jafna keppni innan flokks
b) auka líkurnar á að fleiri keppendur mæti í flokk
c) gera keppnishaldara/keppendum auðveldara að fylgjast með að reglum sé framfylgt.
Varðandi a-lið þá leitast öll mótorsportsambönd við að jafna keppni vegna þess að það tryggir meiri spennu sem fjölgar bæði keppendum og áhorfendum og eykur líkur á fjölmiðlaumræðu. Varðandi b-lið þá fjölgar keppendum ef að keppnin er jöfn en líka þarf að taka hér tillit til kostnaðar sem reglubreyting hefur í för með sér fyrir keppendur. Varðandi c-lið þá er það svo að margar tæknireglurnar hérlendis snúast um það sem er inni í mótor, skiptingu eða hásingu. Við verðum hinsvegar að gera okkur grein fyrir að eins og staðan er í dag er fullkomnlega óraunhæft að keppnishaldarar rífi vélar eða annað ef að grunur leikur á um að keppnistæki sé ólöglegt. Því ætti að reyna að fækka svona "innvols" reglum. Þær reglur sem líklega geta jafnað keppni mest eru dekkjareglurnar.
Það er væri nú fínt ef einhverjir segðu hvað þeim finnst um þetta og bættu við þetta ef þeim sýnist svo.
Err
íbbiM:
ég er svosum ekki sá.. heitasti í þessu,
en mér fannst einhevrnvegin ekki rétt að sjá 4wd og rwd bíla keppa á móti hvor öðrum,
einnig er ég dáldið áhugasamur um eitt atriði í GT flokk, er ekki bannað að skipta út upprunalegri blokk?
kemur reyndar ekki að sök fyrir minn bíl, þar sem ég skipti um blokk en sett bara new style ls1 blokk í hann í staðin, en það eru hinsvegar 3 lsx camaroar sem verða á brautini sem eru með óorginal blokkir, er forvitin að vita í hvaða flokka þessir bílar fara, og hvort ég verði í öðrum flokk en þeir
Hera:
Ég er sammála 66 charger með viðmiðin 3 þó svo ég sé ekkert séní í reglunum og ég ætla ekki að tjá mig um bíla flokkana, þekki þá einfaldlega ekki :wink:
Regla 8.3.1 Allar breytingar á vél leyfilegar ef rúmmál helst innan flokks þessi regla kemur í veg fyrir endurnýjun í hjólaflokkunum nema að einstaklingur hafi mikin áhuga á að breyta hjólinu sínu í kvartmíluhjól til að eiga séns í þá sem eru að keppa nú þegar. Auk þess að eyða fullt af fjármunum og breyta aksturseiginleikum hjólsins.
Ég tel að til þess að endurnýjun í hjóladeild geti þróast eðlilega þurfi að vera til flokkar fyrir óbreytt hjól. þeas einu leyfilegu breytingar væru jettun(powercomander) og púst. Strappar, slikkar og allt annað væri bannað. Auðvelt fyrir keppnishaldara að fylgjast með.
Ef þessi breyting yrði að veruleika þá myndi það jafna keppni innan flokka auk þess að auka fjölda keppenda í kvartmílu þar sem einstaklingur þarf ekki í miklar breytingar til að geta átt möguleika :wink:
Einnig vantar breytingu á flokk fyrir 50cc hjól sem eru með felgur minni en 15" eins og Valli var svo skarpur að reka augun í um dagin.
Persónulega hef ég engan tíma til að vasast í reglugerðarbreytingum en mæli með því að nefndin sem ég las um hérna á vefnum sem á að leggja til tillögur taki þetta til skoðunnar tel þetta geti orðið til aukinnar þáttöku í hjóladeildinni.
Dodge:
Þegar menn keppa í kvartmílu geta víst ekki allir unnið..
Númer 1,2 og 16 tel ég vera að hafa flokkana eins fá og mögulegt er
svo úr verði alvöru keppni.
Ekki bara 1 flokkur per tæki.
maggifinn:
Sammála þér Stefán
Fáar reglur per flokk og fáir flokkar per keppendur.
Navigation
[0] Message Index
[#] Next page
Go to full version