Sælir félagar.
Góður Beggi.
Ég er nú búinn að eiga 1971 Mustang síðan 1987 og ekki vissi ég útlitsmuninn á 1971 og 72.
Þetta skammarlegt eigandi allar þær bækur sem að ég á um þessa bíla.
En mig langar en og aftur að spyrja um 1971-2 Mustang Mach-1 sem var dökk blár með silfurlitar Mach-1 randir, og flekkurinn á húddinu á honum var líka silfur litur og var ferningur eins og á Boss 351 bílnum (var með NASA húdd).
Þessi bíll var á rúntinum 1980-82-3.
Hann var að mig minnir með 351Cleveland, sjálfskiptur og með eina þá rauðustu 9" hásingu sem ég hef séð.
.
Bíllinn sást aldrei öðruvísi en stífbónaður og flottur á keyrslu.
Þessi bíll hreinlega hvarf eins og jörðin hefði gleypt hann í kringum 1983-4.
Það væri gaman að fá að vita ef einhver annar myndi eftir þessum bíl, ætti myndir, eða vissi jafnvel hvar hann væri niður kominn eða hvað varð um hann.
Ég verð að viðurkenna að mér þætti skrítið ef að hann hefði tjónast því að maður fylgdist nokkuð vel með þessu á þessum árum, og ég man ekki til að hafa heyrt um að þessi bíll hefði lent í tjóni.
Vona að einhver muni eftir þessum bíl.