Smá viðbót um 4 ra dyra harðtoppinn. Nokkuð áreiðanlegar heimildir herma að þessi bíll hafi eitt sinn verið í eigu biskupsins yfir Íslandi, Sigurbjörns Einarssonar. Það hefur ekki verið dónalegt að rúlla á honum þessum til messu. Sílsabeyja inn á Dómkirkjuplanið í fullum skrúða og alles.