Sælir félagar,
það virðist vera töluverður áhugi hjá mörgum keppendum að haldin verði Sandspyrna fyrir sunnan (Ölfusi eða Akranesi) Nú eru jeppamenn að klára sisonið og mér sýnist margir 1/4 mílingar vera til í slaginn. Benni Eiriks og þeir fyrir austan eru eflaust til í að gera eitt og annað ef ákveðið verður að halda þetta á Ölfusi.
Hvað segir stjórnin um að sækja um leyfi fyrir Sandspyrnu? Er ekki rétt að láta á það reyna hvað LÍA getur gengið langt í að kúga Íþróttafélög til að fara að þeirra geðþótta. Þeir hljóta að missa þessa einokunarstöðu sem þeir hafa ef þeir geta ekki hagað sér eins og til er ætlast af þeim.
Það getur ekki verið að lögreglustjórinn, sem er eini aðilinn sem má gefa út keppnisleyfi, láti þetta viðgangast mikið lengur. Enda er þessi umsögn sem LÍA gefur út um okkur ekki byggð á vitrænum grunni. Við erum þeir einu sem höfum reynslu og þekkingu á spyrnukeppnum á Íslandi.
kv. GF