Author Topic: Porta hedd  (Read 4112 times)

Offline KiddiJeep

  • Pre staged
  • ****
  • Posts: 283
    • View Profile
Porta hedd
« on: June 11, 2007, 01:44:08 »
Er þetta eitthvað sem gösslari eins og ég get gert sjálfur án þess að fokka öllu upp til helvítis :lol: Eða er eina vitið að láta verkstæði um þetta og hvaða þá? Þetta er potthedd af Jeep línu sexu sem búið er að eiga lítillega við... :)
Kristinn Magnússon.

Offline Heddportun

  • Staged and NOS activated
  • *****
  • Posts: 1.686
  • Engine Builder-Head Porter-CNC Machinist-CAD/CAM
    • View Profile
Porta hedd
« Reply #1 on: June 11, 2007, 01:55:52 »
Nei,ef þér langar að gera þetta sjálfur þarftu að byrja á þvi að lesa þér til um straumfræði og fá þér svona "How To" bók um heddportanir og aðferðirnar og græjur til þess
Heddportun og Vélabreytingar
Innflutingur á vélum,vélhlutum,almennum vara og aukahlutum

USA 01 713 409 6094
Heddportun@gmail.com

Ari Gislason

Offline KiddiJeep

  • Pre staged
  • ****
  • Posts: 283
    • View Profile
Porta hedd
« Reply #2 on: June 11, 2007, 19:40:18 »
hmmm jájá ég held ég nenni því ekki :lol: Hvaða verkstæði mæla menn með???
Kristinn Magnússon.

Offline fordfjarkinn

  • In the burnout box
  • ***
  • Posts: 240
    • View Profile
Porta hedd
« Reply #3 on: June 12, 2007, 10:12:21 »
þú finnur öruglega ekkert verkstæði á landinu sem gæti gert þetta að einhverju viti. Þar fyrir utan yrðiru öruglega arðrændur og fengir einhverja sirkabát útkomu. Sennilega ónítt hedd sem flæðir ekki neitt.
Sjáðu hvað þú getur fundið á þessari síðu www.cliffordperformance.net/
Það er eina vitið að láta atvinnumenn sjá um hedda vinnuna þar sem það er mikið vanda verk að gera það rétt. (meira er ekki altaf betra í þeim málum).
KV. teddi@racebensin.com[/quote]

Offline Dodge

  • Staged and NOS activated
  • *****
  • Posts: 2.204
    • View Profile
Porta hedd
« Reply #4 on: June 13, 2007, 01:49:09 »
heddportun er gríðarlega tímafrekt, þú vilt ekki borga verkstæðismanni sem veit að sjálfsögðu ekkert meira um málið en þú 7000 á tímann fyrir þessa vinnu.

Það er ekkert flókið að bæta flæði um slatta og sleppa við að eiðileggja heddin bara með smá vinnu og common sence.

Ég efast um að slant six heddin standi undir meiri speki en það
Besti tími í kvartmílu. 10,697  60ft. 1,543  hraði. 114,5mph
Besti tími í 1/8. 6,526  60ft. 1,865  hraði. 117,5
Besti tími í sandi 4,762

Kveðja, Stefán Steinþórsson
sími: 866-9282   e-mail: dodge@ba.is

Offline KiddiJeep

  • Pre staged
  • ****
  • Posts: 283
    • View Profile
Porta hedd
« Reply #5 on: June 13, 2007, 13:07:30 »
Já ég er nefnilega eiginlega svona nokkurn veginn kominn á þá skoðun að prófa þetta sjálfur... er búinn að finna nokkrar greinar á netinu um þetta þar af eina mjög góða og ítarlega ( http://www.sa-motorsports.com/diyport.aspx ) og get ekki séð að þetta séu einhver geimvísindi... svo ef illa fer þá nota ég bara hitt heddið mitt, alltaf gott að eiga nóg af drasli  :P
En er eitthvað fleira sem sniðugt væri að gera fyrir heddið? Nú hef ég stundum heyrt talað um að skera til ventlasæti... hvað fær maður með því... er það eitthvað sem svarar kostnaði?
Ég er með Jeep 4.0 High Output vél sem búið er að stróka í 4.7 lítra með þrykktum stimplum, 9.5:1 í þjöppu og skemmtilegheit :P
Kristinn Magnússon.

Offline Heddportun

  • Staged and NOS activated
  • *****
  • Posts: 1.686
  • Engine Builder-Head Porter-CNC Machinist-CAD/CAM
    • View Profile
Porta hedd
« Reply #6 on: June 13, 2007, 17:25:40 »
Þú getur farið með þau í kistufell,vélaland og fleiri og látið skera úr fyrir stærri

Þeir í kistufell skera 3gráður í sætin ef þú lætur skera þau,það er innifalið í verðinu,það að skera gráður í sætin og ventlana eykur loftflæðið sérstaklega frá opnun til 0.200" lift

Ef þú stækkar ventla án þess að laga portin til og þá sérstaklega hálsinn fyrir framan þá hægiru á loftflæði sem er alger killer en sammt er ekki gott að vera með of hratt loftflæði,

Loftflæði er ekki aðalatriðið heldur lofthraðinn og hvernig loftflæðið er miða við liftuna á ventlinum

Aðal málið er að vera með öll port eins en það er mjög erfitt að ná því án flæðibekks og vinnu

Það er mjög erfitt að útskýra þetta í örfáum orðum en þetta er ekki eins auðvelt eins og það sýnist
Heddportun og Vélabreytingar
Innflutingur á vélum,vélhlutum,almennum vara og aukahlutum

USA 01 713 409 6094
Heddportun@gmail.com

Ari Gislason

Offline Halldór Ragnarsson

  • Staged and NOS activated
  • *****
  • Posts: 713
    • View Profile
Porta hedd
« Reply #7 on: June 13, 2007, 19:40:25 »
Vasinn fyrir neðan ventlana er aðalatriðið,þar færðu 65% aukningu á flæði
ef þú gerir það rétt,
HR
Halldór Ragnarsson
BUY A FORD,BUY THE BEST,DRIVE A MILE,WALK THE REST

Offline chewyllys

  • In the burnout box
  • ***
  • Posts: 132
    • View Profile
Portun..
« Reply #8 on: June 14, 2007, 21:08:26 »
Þetta er ekkert mál, bara vinna,byrjar á einu porti,taktu góðan tíma í að fræsa það út,og svo koll af kolli,mældu alltaf eftir því fyrsta,eins með útbl.Póleraðu svo chamb.smá dútl en bara betra.Vittu til þú finnur mun.
KV.
Björn V.   #794
ChevyBenz. 13.36@105 mph.
3525 lbs.

Offline Nonni

  • Staged and NOS activated
  • *****
  • Posts: 890
    • View Profile
Porta hedd
« Reply #9 on: June 14, 2007, 22:09:15 »
Skrítið hvað það er erfitt að fá aftermarket hedd á þessa mótora.
Jón H. Guðjónsson

1986 Pontiac Firebird Transam
1981 Chevrolet Blazer K5 Silverado
2007 Jeep Grand Cherokee Laredo
2006 Trek 5200
2012 Cube LTD Race

Offline Halldór Ragnarsson

  • Staged and NOS activated
  • *****
  • Posts: 713
    • View Profile
Porta hedd
« Reply #10 on: June 14, 2007, 23:13:00 »
Eitthvað hafa menn verið að föndra með 4.0 L heddin á þessa mótora
Það er hægt að fá svona sett frá Clifford,kostar slatta af $
http://www.cliffordperformance.com
Halldór
Halldór Ragnarsson
BUY A FORD,BUY THE BEST,DRIVE A MILE,WALK THE REST

Offline KiddiJeep

  • Pre staged
  • ****
  • Posts: 283
    • View Profile
Porta hedd
« Reply #11 on: June 14, 2007, 23:30:40 »
Það er nú hægt að fá álhedd á þetta frá fyrirtæki sem heitir Hesco, þeir eru líka með orginal hedd sem er búið að CNC renna og gera fínt. Finnur þá á hesco.us. Clifford er síðan mestmegnis bara með dót á 258 mótorinn :?
Ég hef bara mjög takmarkaðan áhuga á að fara að spreða helling af peningum í hedd :lol: margt fleira sem ég á eftir að gera í þessum jeppa... :P

takk fyrir mig
Kristinn Magnússon.