Í tilefni af því að sumarið er senn að ganga í garð ætlar Krúser menn að starta sumrinu
og rúnta í fyrsta skipti nk. fimmtudag, Sumardaginn fyrsta eða þann 19. Apríl.Dagskráinn er eftirfarandi:
Milli kl. 15:00 og 18:00 ætlar klúbburinn að hittast við hamborgarastaðinn
Eika Feita við Barðastaði 1-5 sem er í hjarta Grafarvogs. Þar verða á boðstólnum gljáfægðar glæsikerrur sem spenntar hafa beðið eftir sumrinu eftir langa dvöl í skúrnum í vetur.
Hljómsveit verður á staðnum og hægt verður að skella í sig sveittum borgurum og ísköldu CocaCola við gljáfægða bílana.
Fyrir þá sem ekki vita hvar Eiki Feiti er til húsa þá er hann rétt norðan við Korpúlfsstaði eða í Staðarhverfinu þar.
KL. 18:00 VERÐUR STOPPAÐ VIÐ TANGARHÖFÐA 8-12 ÞAR SEM BÍLASÝNINGIN BÍLADELLA 2007 FER FRAMSíðan verður haldið að Bíldshöfða 18 og verður það sýndur nýinnfluttur bíll af gerðinni,
Plymouth Barracuda árgerð 1972 að Bíldshöfða 18.
Fljótlega upp úr 21:00 verður síðan farinn fyrsti rúntur sumarsins áleiðis í miðbæ Reykjavíkur.
Að sjálfsögðu vonum við eftir að sjá sem flesta, en hafa skal í huga að
Kvartmíluklúbburinn verður með sína sýningu sama dag og fram yfir helgi, og hvetjum við sem flesta að kíkja þangað, en í senn þá er um að gera að skipuleggja sig nk. fimmtudag og nota tímann til hins ýtrasta!
ÞÓ BER AÐ MINNA Á AÐ DAGSKRÁ GÆTI BREYST VERÐI VEÐUR LÉLEGT!Með kveðju um gott sumar.
Krúser!
