Kvartmílan > Bílarnir og Græjurnar
páska harkan
firebird400:
Svona leit fjöðrunarbúnaðurinn út þegar ég tók hann úr og var búinn að slípa hann aðeins til.
Og svona þegar það er búið að sandblása og pólýhúða (powdercoat)
Nýjar pólyfóðringar, stýrisendar, spindlar og alles.
Nýja ballansstöngin er AÐEINS sverarai en orginallinn :lol:
Maður verður að redda sér á ýmsann hátt stundum, þarna er ég að taka skapalón af festingunnum.
Lokið komið á, takið eftir víraógeðinu þarna.
Víraflækjan var að mestu fyrir þetta tvennt, miðstöðvarviðnámið og þetta relay, þetta var allt utanáliggjandi svo ég færði það bara innann í miðstöðvar kassann.
Smíðaði bara lítið brakket úr 3 mm áli fyrir viðnámið og núna er það á miklu betri stað en áður :D
Á eftir að sprauta hvalbakinn svo ekki spá í því neitt ;)
Allt þetta var ofanlega í vélarsalnum og vel sýnilegt áður :?
Hérna er ég búinn að grisja úr þá víra sem voru fyrir A/C og búinn að koma þessu fyrir, bara eftir að festa lúmið.
Fyrst ég var á annað borð inn í mælaborðinu þá tók ég bara líka til þar, greinilegt að fyrri eigandi var ekki með mína fullkomnunar áráttu :lol:
Og svona lítur þetta út núna, bara eftir að sprauta lokið og setja blásarann í.
Lúmið sem er þarna neðarlega á hvalbakinum er hluti af því sem ég gerði seinast, en þá tók ég hina hliðina í húddinu í gegn, þetta sést ekki, fer bak við vélina.
Var að fara með innra brettið til félaga míns í viðgerð, það var búið að skera í það og hann ætlar að sjóða það fyrir mig.
Veit ekki hvenær ég fæ það aftur né hvenær ég get komið því við að sprauta lokið (er enn að ákveða lit) svo það er óvíst hvenær ég fer að raða saman
Sjáum svo hvað gerist í kvöld. :D
Ingvar Gissurar:
Flottur frágangur, Því miður eru allt of algengt að það sé ekkert spáð í smáatriðunum í húddinu og frágangi á snúrum, köplum, börkum oþh.
Þó að smáatriðin séu kannski ekki fyrir augunum á manni dagsdaglega þá skipta þau ekki síðra máli en það sem utan á er :wink:
Ein trosnuð illa frágengin snúra getur stórskemmt heildarmyndina.
Alltaf gaman að sjá svona.
Moli:
Glæsilegur frágangur Aggi! 8) þetta fær mann til að langa til að gera þetta við minn, hef því miður of takmarkaðan tíma!
CAM71:
Þetta er flott hjá þér og fagmannlega gert!
Hvað ertu að borga fyrir polyhúðunina á þessum hlutum sem eru á myndunum? Er þessi húðun bara til í einum lit?
firebird400:
Það tók svona 45 min að færa og snyrta til rafmagnið :wink:
Navigation
[0] Message Index
[#] Next page
[*] Previous page
Go to full version