Kvartmílan > Keppnishald / Úrslit og Reglur

Banna radial dekk

<< < (5/5)

1966 Charger:

--- Quote from: "Kristján Skjóldal" ---Ég er kanski að ekki að skilja þetta sport rétt :?  ég hélt að þetta  snérist um að ná sem bestum tima :shock: og ef þú ert að keppa í svona sporti þá kaupir maður dekk sem virka :!: þetta er eins og hlaupari sem tímir ekki að kaupa sér skó :roll:og keppir bara á sigvélum :lol:
--- End quote ---



Sæll frændi

Það verður nú að meta það sjálfur hvort eitthvað sé til í því sem þú heldur um skilning þinn á sportinu.  En til að svara þessari radialbannhugmynd þinni þá er það nú svo að:
Ég er svo sérvitur að mér finnst ögrun í að prófa að ná sem bestum tímum á dekkjum sem ERU götulögleg vegna þess að það er erfiðara.
Ég er svo gamaldags að vilja keyra keppnistækið mitt til og frá keppni á götulöglegum dekkjum vegna þess að það fellur undir skilgreiningu mína á ekta götubíl.
Ég er svo frekur að telja að keppnistæki á venjulegum radíölum eigi jafnan rétt á að keppa á þessari blessuðu kvartmílubraut og grílljón hestafla tæki á 700" breiðum slikkum.
Ég er svo mikill pervert að mér  finnst meira til koma að sjá bíla á venjulegum radial ná undragóðum tíma en bíla á slikkum.
og ........mér er svo nákvæmlega sama þótt einhverjir kallar og kerlingar hlæja að þessum tilraunum mínum og hneggja í eyru hvers annars í vandlætingartóni eins og kjólprestar á kirkjuþingi.

Stundum er allt í lagi að vera sérvitur, gamaldags og frekur pervert sem er skítsama um hvað öðrum finnst.

Ragnar

firebird400:
Stjáni, seinast þegar við töluðum saman þá varstu svo ánægður með föstudagsæfingarnar vegna þess að þær settu svo mikið gúmmí niður í brautina  :lol:

Var það svona eins og með ljótu píurnar, radíal dekkin farin að lúkka fín eftir nokkra bjóra  :lol:

 :wink:

Kristján Skjóldal:
já já  :smt030 þetta er mjög gott á föstudögum en ekki laugardögum [-X

Marteinn:
búhúú

Navigation

[0] Message Index

[*] Previous page

Go to full version