Kvartmílan > Bílarnir og Græjurnar

'73 'Cuda - Myndir.

<< < (27/32) > >>

Anton Ólafsson:
Stebbi fötum sneiðirs sig
Snöggur eins og alltaf,
Ekki getur enn girt sig,
Enda tapar alltaf.'

Einar Birgisson:
Hann er víst mjög heitur dansari senjor Cuda Steve ........

1966 Charger:

--- Quote from: Anton Ólafsson on July 26, 2008, 00:02:05 ---Í tilefni að þessi cuda fær ekki að keppa sökum dekkja í drifti og þurfti að hætta keppni í mílu eftir að detta í svaða spól eftir huntsið, þá hvað ég þetta,

Aksturinn er eintómt spól,
olían af versta tagi.
Enginbremsa ónýt hjól,
allt í þessu fína lagi.

--- End quote ---

Og að því tilefni að  Sir Anton Continental er farinn að eigna sér vísu* sem birtist m.a. í fréttablaði Bílaklúbbs Akureyrar í janúar 1976 þá kemur tvennt til:

Hann hefur byrjað að yrkja á sáðfrumustiginu og þá á þetta við:

Klambraði saman kvæði
og kyrjaði í legi.
Þegar hann var sæði
seint á laugardegi.

......eða fæðingarárið hefur fokkast verulega upp í þjóðskránni og kallinn er eldri en þar segir:

Ölið er honum kyngikraftur
á kappan rennur æði.
Rembist við að yrkja aftur
annarra manna kvæði.

Góðar stundir

Ragnar

Anton Ólafsson:

--- Quote from: 1966 Charger on August 03, 2008, 11:23:04 ---

Kæri Sáli,,,

Áður en að ég læt drekkja mér í kærum fyrir ritstuld, þá verð  ég nú að krafsa í bakkann,
Ekki ætlaði ég mér að eigna mér þessa fínu stöku, var með hana í hausnum og skellti henni á Stefán kvöldið góða sem ég skrifaði hana á netið.
Hefði átt að skrifa eitthvað annað en "hvað ég þetta" t.d á þessi staka vel við núna.

Sáli illa skrifar um
sárþreyttan drengstaula.
Sem illa sér fyrir Fordum,
skammirnar sem á hann baula.

Jón Þór Bjarnason:
Rútan fer frá Akureyri klukkan 13:00 á morgun LAUGARDAG og er kominn á áfangastað klukkan 15:00 samdægurs

Setti hér leiðatöfluna í heild sinni til þín Anton.
http://www.nat.is/travelguideeng/bus_stop_akureyri_egilsstadir.htm

Navigation

[0] Message Index

[#] Next page

[*] Previous page

Go to full version