Sælir félagar.
Sæll Grétar.
Ég verð nú að segja að mér fannst alltaf einkennileg þessi nýja skipting á SE/flokknum (Nýja? 2001-3)
Flokkurinn var búinn að vera góður í meira en tíu ár og flestir þeir sem kepptu í honum voru ánægðir með hann.
Svo var það líka að það var búið að tvinna hann saman við bæði MC og GF/flokka, þannig að auðvelt var að breyta á milli sama hvaða vélarstærð menn voru með.
Í þeim breytingum sem ég legg til á SE/flokki er ég að bæta inn í einu þyngdarmarki, þannig að litlar "small block" vélar eigi möguleika og þurfi ekki að vera að fara í 1450kg.
Þá legg ég líka til að hámarksstærð á mótorum verði sambærileg við það særsta sem gæti gerst í MC/flokki sem er 460 + 100cid = 560cid.
Ég legg líka til að mönnum verði leyft að létta sín tæki, þar sem þessi flokkur er orðinn með hærri þyngdarmörk en flestir aðrir flokkar.
Þar tek ég til fyrirmyndar "True Street" flokk OSCA
http://www.kvartmila.is/spjall/viewtopic.php?t=7110Þar er þyngd á aflaukalausum (NA) bílum 1315kg.
En mesta þyngd þar er 1520kg á "Big block" með forþjöppu.
Þessar tillögur gera langt í frá þá bíla sem voru að keppa í SE ósamkeppnishæfa, þær auka frekar breyddina sem er í flokknum og minkar það ósamræmi sem er á milli stórra og lítilla mótora.
Síðan er jafnvel ógjörningur fyrir menn með létta bíla að stækka við sig í mótorum þó að það sé ekki nema 416cid, því að þá þurfa þeir að þyngja bílana.
Bíll sem er til dæmis 1350kg og er með 416cid þarf að fara í 1550kg en má bara samkvæmt aðalreglum þyngja (með "lausri" ballest) um 114kg (2x57kg), og þá eru 86kg eftir.
Það er töluvert stór biti ekki satt.
Þetta ætti að gera það að verkum að auðveldara og jafnvel ódýrara væri fyrir menn að keppa í SE/flokki.
Það getur ekki verið gaman að keppa einn í heilt tímabil og segja jafnvel aðspurður að maður sé Íslandsmeistari eftir eina keppni þar sem maður keppti einn.
Það getur ekki verið gaman, þó að ég muni eftir nokkrum atvikum gegnum árin
Já og hvað hafa verið margir keppendur í SE síðustu fjögur ár
Það væri gaman að athuga það
Annars getur þú Grétar lesið flest það sem ég er að skrifa í þessum pósti ef þú lest bara þráðinn
Já ekki má gleyma tilllögunni hans Frikka.
Ég styð hana ekki óbreytta
Ég vil sjá hana öðruvísi útfærða og þannig að hún taki líka yfir öryggisreglurnar og sjái um uppfærslur á þeim
Einnig að aðalfundur kjósi allavega einn fulltrúa í hana.
Hinns vegar verðum við að horfa á þá staðreynd að þegar nýtt akstursíþróttasamband verður stofnað innan ÍSÍ, þá fara þessar reglur þangað og við höfum ekki lengur einir yfirráðarétt yfir reglum á Íslandsmótinu.
Þar inni verða líka fulltrúar frá öðrum félögum sem stunda sama sport