Æfingin í kvöld var alveg frábær og til fyrirmyndar þrátt fyrir smá tafir í byrjun út af ljósunum sem voru stillt fyrir sandinn, menn voru afslappaðir og allt gekk ljómandi. Nýliðar voru nokkrir og stóðu sig mjög vel, bílarnir voru alls 27 og hjólin 7. Það kólnaði hastarlega eftir því sem leið á kvöldið en mér fannst áhorfendur samt harka það af sér miðað við það að sumir voru frekar léttklæddir.
Nú svo er keppnin á morgun og vil ég minna meðlimi á það að hafa skírteinin sín með sér og sýna í hliðinu, starfsmönnum til upplýsinga og reyna eftir fremsta megni að stoppa í hliðinu og sýna það en ekki bruna þar í gegn og veifa því framan í starfsmennina.Kostnaði er haldið í lágmarki að venju og kostar litlar 1000kr inn og frítt er fyrir 16 ára og yngri. Sjoppan er enn á sínum stað með gotterí og samlokur og gos og svala.
Og eitt að lokum, hundar eru með góða heyrn og reynum að skemma hana ekki með því að láta greyin húka upp við brautina í gífurlegum hávaðnum frá tækjunum. Einnig eiga hundaeigendur eða forráðamenn að þrífa eftir þá skítinn en ekki eftirláta öðrum það.
Svo skulum við öll mæta brosandi og glöð á morgunn og skemmta okkur frábærlega!