Valli þú ert maðurinn, Kvartmíluklúbburinn datt svo sannarlega í lukkupottinn þegar þú ákvaðst að ganga til liðs við hann.
En frábærir tímar litu dagsins ljós í dag sýnist mér, Gunni fór á 13.15 á 104 mílum á Golfinum, Alli fór 13.89 á 98 mílum á Hondu Civic. Bjössi á 1000 súkku niður í 9.97 á 143,8 mílum sem er dem góður hraði.
Leifur getur varla talist sáttur með þennan dag yfir höfuð, kannski hefur hann lent í smurolíureyk frá einhverjum keppenda (hóst
Stígur hóst) og fipast, flottur tími hjá Leif í tímatökum 9.1 á 147 mílum.
Stígur dró kanínu upp úr smurolíupotti og fór á 9.247 á 149 mílum, hvaðan kom þessi hraði og þessi tími Stígur? 136 best í tímatökum, fannstu power takkann eða bættirðu við bústi? Var skift um olíu í millitíðinni
eða hitnaði bara brautin og gripið varð meira? Eitthvað hefði verið sagt ef þetta hefði verið Subaru eða Honda.
Létt yfir mannskapnum á laugardagskveldi, (enginn Thule þó).
Maður dagsins að mínu mati er samt Elli á Primerunni sem gleymdi að skrá sig í keppni að eigin sögn, hefði getað átt möguleika á gulli í GT flokki á 11.85 á æfingu í gær
Kv. Nóni