Sæl
Starfsfólk Brimborgar, viðskiptavinir og velunnarar ætla að hittast og upplifa ofursportbíllinn Ford GT í fyrsta sinn. Núna í kvöld, föstudaginn 16. júní, milli klukkan 18 til 19.30.
Við viljum auðvitað fá sem flesta bílaáhugamenn til okkar í kvöld og því vil ég hvetja ykkur til að kíkja við og skoða bílinn í kvöld. Ef þið eruð á leiðinni norður á bíladaga þá komið bara við, kíkið á bílinn og grípið með ykkur kók og prins og plakat af Ford GT.
Hulunni verður svipt af bílnum kl. 18:15. Komið og snertið einn magnaðasta bíl sem framleiddur hefur verið, Ford GT.
Ef þið komist ekki í kvöld þá verður almenn frumsýning sbr. frétt á Ford vefnum og þið getið lesið hana með því að smella á þessa slóð:
http://www.ford.is/Einnig verður undirbúið sérstakt lokað kvöld fyrir netverja á næstunni. Verður það auglýst sérstaklega.
Með kveðju
Brimborg
Egill Jóhannsson, framkvæmdastjóri