Jú það er rétt, alveg frábærlega heppnaður bíll þessi silfur-cuda. Guli 73 bíllin er rifinn og ónýtur, og svuntan er af bláa 72 bílnum, 71 svuntan er í sandblæstri.
Strákar mínir, get bara sagt að það gengur flott að vinna í bílnum, ákvað að fara með hann í pro-street uppgerð, 4-link fjöðrun, það er svo gaman að smíða aftur þegar maður er kominn aftur í gamla fasteignasala jobbið.
Set inn hérna nokkrar myndir til viðbótar, ekki fyrir hjartveika menn sem kunna ekki að smíða og sjóða. Nei annars held ég sleppi því, það kæmu bara comment frá einhverjum lúðum sem ekkert kunna eða geta, og rakka svo fyrrverandi gullið hans Gulla Emils í svaðið. Það er ekki gott fyrir geðheilsu hans.