Author Topic: mercury comet GT  (Read 9817 times)

Offline Comet GT

  • Pre staged
  • ****
  • Posts: 414
    • View Profile
mercury comet GT
« on: May 21, 2006, 00:14:23 »
er að leita af Mercury Comet GT 1971-75. eftir því sem ég kemst næst hafa allavega verið á landinu 3 svona bílar, einn 73-5 hvítur með rauðum röndum, annar á svipuðum aldri, rauður með svartri rönd, og svo einn 72, gylltur með svarta rönd.

72 bíllin 1982 önnur mynd, fyrir miðju
http://www.ba.is/index_old.htm

hvíti 74-5 neðst
http://www.ba.is/main/1977/1977.htm

allar upplýsingar um þessa bíla og varahluti í þá væru mjög vel þegnar

Sævar P 847-9815
Sævar Páll Stefánsson.

ef það er fast; notaðu sleggju.
ef það brotnar; þá þurfti hvort sem er að skipta um það...

Offline Packard

  • Playing NHRA on playstation
  • *
  • Posts: 0
    • View Profile
mercury comet GT
« Reply #1 on: May 21, 2006, 08:16:28 »
Var að spá í að kaupa þennan hvíta árið 1983.Þá var hann í eigu starfsmanns á bílaleigu Akureyrar.Mjög flottur bíll og þá með 302 V-8.Sá hann síðast standa við bílskúr í Skipasundinu,þá allur klesstur að framan.
Síðan hef ég ekki séð hann.
Einn gamall kunningi minn átti þann rauða í nokkur ár
Sigurbjörn Helgason

Offline Comet GT

  • Pre staged
  • ****
  • Posts: 414
    • View Profile
mercury comet GT
« Reply #2 on: May 22, 2006, 17:52:18 »
veit einhver hvort að einhverjir fleiri en þessir þrír GT bílar  hafa verið á landinu?
Sævar Páll Stefánsson.

ef það er fast; notaðu sleggju.
ef það brotnar; þá þurfti hvort sem er að skipta um það...

Offline Packard

  • Playing NHRA on playstation
  • *
  • Posts: 0
    • View Profile
mercury comet GT
« Reply #3 on: May 22, 2006, 22:36:00 »
Heyrði í dag að það hefði komið einn grænn líka.
Sigurbjörn Helgason

Offline broncoisl

  • In the burnout box
  • ***
  • Posts: 130
    • View Profile
mercury comet GT
« Reply #4 on: May 22, 2006, 23:41:09 »
Ég hef ekki heyrt um fleiri.

Átt þú einn af þessum?


Ef einhver á scoop vantar mig svoleiðis.
Björn Guðmundsson
_______________________
Mercury Comet 1974 - 351W
Krúser 351

Offline Firehawk

  • Pre staged
  • ****
  • Posts: 450
    • View Profile
Re: mercury comet GT
« Reply #5 on: May 23, 2006, 08:31:43 »
Quote from: "Comet GT"


72, gylltur með svarta rönd.

72 bíllin 1982 önnur mynd, fyrir miðju
http://www.ba.is/index_old.htm



Held að þessi sé ennþá til í uppgerðarhæfu ástandi á Akureyri.

-j
"There is a fine line between hobby and obsession and I think I crossed it!"

Jóhann Sigurvinsson
1994 Pontiac Firebird Trans Am Firehawk Pilot car #02
1997 Pontiac Grand Prix GTX Clone
1973 Pontiac Firebird Project
2007 GMC Acadia

Offline Firehawk

  • Pre staged
  • ****
  • Posts: 450
    • View Profile
mercury comet GT
« Reply #6 on: May 23, 2006, 08:34:41 »
"There is a fine line between hobby and obsession and I think I crossed it!"

Jóhann Sigurvinsson
1994 Pontiac Firebird Trans Am Firehawk Pilot car #02
1997 Pontiac Grand Prix GTX Clone
1973 Pontiac Firebird Project
2007 GMC Acadia

Offline Maverick70

  • Staged and NOS activated
  • *****
  • Posts: 765
    • View Profile
mercury comet GT
« Reply #7 on: May 25, 2006, 21:06:06 »
þessi á akureyri var þokkalega heill, reif drasl úr honum fyrir ári en það þurfti nú samt að laga, vantaði framhjólastell og fleira
1965 vw bjalla
                   

Heimir Kj.

Offline Comet GT

  • Pre staged
  • ****
  • Posts: 414
    • View Profile
mercury comet GT
« Reply #8 on: May 29, 2006, 19:38:51 »
já ég á 72 bílinn í dag og er að leita að original Gt pakkanum á hann. þessi bíll er vel í uppgerðarhæfu standi ( að mínu mati allavega) en vantar ýmislegt á hann sem hefur horfið í árana rás s.s spoiler, scópið, speglana ofl....

Heimir hvað áttu mikið til ennþá af þessum bíl og hvað ertu til í að láta?
Sævar Páll Stefánsson.

ef það er fast; notaðu sleggju.
ef það brotnar; þá þurfti hvort sem er að skipta um það...

Offline Anton Ólafsson

  • Staged and NOS activated
  • *****
  • Posts: 1.972
    • View Profile
mercury comet GT
« Reply #9 on: April 25, 2007, 14:18:01 »
Sá hvíti er 74.

Hann er afskráður 89 og Vaka er síðasti skráði eigandi.

fastanúmmerið á honum er BO-635

Hann bar þessi númmer

25.04.1986     E1517     Gamlar plötur
01.02.1984    E2839    Gamlar plötur
11.05.1983    A6123    Gamlar plötur
22.10.1982    A8644    Gamlar plötur
07.05.1982    A2891    Gamlar plötur
03.05.1982    A5556    Gamlar plötur
24.05.1978    A972    Gamlar plötur
16.04.1974    A656    Gamlar plötur

Offline Comet GT

  • Pre staged
  • ****
  • Posts: 414
    • View Profile
mercury comet GT
« Reply #10 on: April 26, 2007, 11:51:14 »
þakka þér anton.
atli það sé ekki borin von að reyna að athuga þetta hjá vöku, tæp 20 ár síðan hann var pressaður...
Sævar Páll Stefánsson.

ef það er fast; notaðu sleggju.
ef það brotnar; þá þurfti hvort sem er að skipta um það...

Offline Anton Ólafsson

  • Staged and NOS activated
  • *****
  • Posts: 1.972
    • View Profile
mercury comet GT
« Reply #11 on: September 21, 2007, 10:17:12 »
Ein ný af þínum 8)

Offline Ztebbsterinn

  • Pre staged
  • ****
  • Posts: 424
    • View Profile
mercury comet GT
« Reply #12 on: September 21, 2007, 18:51:47 »
Einn svona 4 dyra á Hafralæk
~~~~~~~~~~~~~
Delorean DMC "81
MB. 230C "80
MB. 300D "77
Swift Cabrio "92
~~~~~~~
Stefán Örn Stefánsson

Offline Comet GT

  • Pre staged
  • ****
  • Posts: 414
    • View Profile
mercury comet GT
« Reply #13 on: September 21, 2007, 20:18:10 »
þakka þér kærlega toni  :smt041
loksins einhverjar fleiri myndir.
kanski maður fari að drattast í að gera eitthvað í honum loksins, kominn með hreyfil og allt sem þarf til að hreyfa hann :D
Sævar Páll Stefánsson.

ef það er fast; notaðu sleggju.
ef það brotnar; þá þurfti hvort sem er að skipta um það...

Offline Zaper

  • Staged and NOS activated
  • *****
  • Posts: 710
    • View Profile
mercury comet GT
« Reply #14 on: September 21, 2007, 22:14:10 »
það voru 2. 4 dyra á hafralæk, held að sá sem hafi fengið þá sé einhver comet gúrú (bara  búinn að taka annan þeirra)
Gremlin Owners Are Special
AMC       "77   
Plymouth "66
Ásgrímur Þ

Offline Comet GT

  • Pre staged
  • ****
  • Posts: 414
    • View Profile
mercury comet GT
« Reply #15 on: September 22, 2007, 14:01:50 »
ef þú ert að tala um beislitaða fjögra dyra bílinn og græna ógeðið þá tók ég þennann beislitaða fyrir ca 4-5 árum þegar ég skipti á honum og gamalli mözdu. ég sá ekkert í þessum græna sem ég hefði ekki hvort sem er fengið með hinum svo að ég var ekkert að hreyfa við honum.

en fyrst við erum farnir að tala um hafralæk þá var þarna suddalegur fjögra dyra Grand Torino sem að sárbænir um að einhver góður maður komi og geri hann upp
Sævar Páll Stefánsson.

ef það er fast; notaðu sleggju.
ef það brotnar; þá þurfti hvort sem er að skipta um það...

Offline Anton Ólafsson

  • Staged and NOS activated
  • *****
  • Posts: 1.972
    • View Profile
mercury comet GT
« Reply #16 on: September 22, 2007, 14:20:19 »
Torino á Hafralæk

Offline edsel

  • Staged and NOS activated
  • *****
  • Posts: 2.041
    • View Profile
mercury comet GT
« Reply #17 on: September 22, 2007, 19:27:29 »
smá meira um Torioinn
Sindri Freyr Pálsson
BMW E30 318 IS vél '87 seldur  :smt010
Toyota Touring '89 klesstur
Hyundai Sonata '95 seldur :D
Ford Bronco II '88 daily driver :D :D :D :smt093

screepo

  • Guest
mercury comet GT
« Reply #18 on: September 22, 2007, 21:10:35 »
Er með comet 70-72 í skúrnum hjá mér, sem ég þarf að losna við.
Sá fyrsti sem kemur með kerru og tekur hann, á hann.
Eiríkur Óskarsson
Gsm 8695633

Offline 1966 Charger

  • Staged and NOS activated
  • *****
  • Posts: 849
    • View Profile
mercury comet GT
« Reply #19 on: September 22, 2007, 22:23:07 »
Ein saga þessum Torino tengd:

Það var á gamlárskvöld 1981 að við héldum alveg ógurlega veislu (hey ef þið viljið rengja það þá á ég enþá innkaupalistann) :) í blokkaríbúð úti í þorpi. Undir miðnættið var gert edrútékk á liðinu og fannst þar fátt um fína drætti.  Þó var hægt að finna einn ökumann á staðnum og var hann samstundis settur undir stýrið á fornum Willys sem þá var svona Vara-Willys í eigu hins pollrólega og farsæla torfæruökumanns Guðmundar "Dunda" Gunnarssonar (vélin í torfærujeppa hans var 340 vélin úr Kókosbollunni).  Þegar gamli Willysinn var orðinn þéttsetinn var lagt af stað inn í bæ eftir að hann hafði verið snúinn í gang (það var talsvert frost þessa nýjársnótt þannig að geymirinn hafði ekki nóg djús).  Á Glerárgötunni var Willinn komninn á dálaglegt skrið þegar hann renndi inn á Glerárbrúna.  Þótt götur væri auðar þá var lúmsk hálka á brúnni þar sem maður kemur að umferðarljósunum.  Þar á ljósunum beið einn bíll, Torinoinn sem myndin er af hér að ofan.  Inni í Fordinum var náttúrulega gleðskapur mikill eins og vera ber í ölvögnum af þessu kaliberi.  Lítið vissi hirðin í Torinoinum hvað biði þeirra.... Þegar gamli Willysinn kom inn á Glerárbrúna reyndi allsgáður ökumaðurinn að bremsa en lítið gerðist vegna hálkunnar.  Skipti nú engum togum að Villinn rann aftan á Torinoinn.  Þetta virtist í fyrstu svona týpisk aftanákeyrsla en svo var ekki.  Málið var nefnilega það að þegar búið var að snúa Willysinn í gang við upphaf ferðar var sveifin dregin fram og þá lá hún áfram fram úr jeppanum og út yfir stuðarann.  Skipti því engum togum að Willi tók Torinoinn aftan frá og sveifinn stakkst á bólakaf inn í skottið á honum.  Ekki var allt búið með það.  Einum farþega Willans fannst það algjör óþarfi að eitthvert amerískt teppi væri að þvælast þarna á brúnni; rauk hann út úr jeppanum og skipaði höstugur hirðinni í Fordinum að drulla sér frá því við værum á hraðferð inn í miðbæ.  Var orðið við þeirri ósk í snarhasti og urðu engin frekari eftirmál af þessu enda allir nýbúnir að gera sín nýjársheit um að elska náungann.......

Hvort það var sama gamlárskvöld eða síðar að einn Moparforinginn á Akureyri eignaðist forláta gamla yfirbyggða Weapon rútu í flóknum bílaviðskiptum.  Rútan var með dieselvél og trobúlið var að hún var alveg helvíti erfið í gang (sem hefði aldrei gerst ef Mopar vélin hefði enþá verið í henni).  Reyndar fór allur gamlársdagur í að fá hana í gang og þegar hæst stóð í stönginni þá sást til gripsins þar sem hún var dreginn af jeppa á allgóðri ferð inn Drottingarbrautina.  Ökumaður rútunnar hafði afar takmarkað útsýni við þennan drátt vegna þess að húddið á rútunni var opið.  Skýringin á opna húddinu var að framan á stuðara rútunnar stóð nefnilega einn Akureyrskur ofurhugi með startspray sem hann úðaði af öllum mætti inn um loftinntak rútunnar í þau fáu skipti þegar vélin sýndi eitthvert líf.  Rútuhróið fór reyndar aldrei í gang en menn dóu ekki ráðalausir.  Hún var bara dregin niður í miðbæ og lagt við torgið (þið munið eftir torginu sem var þar áður en einhverjir arkitektabjálfar eyðilögðu rúntinn) og þar var svo haldinn þokkalegur gleðskapur fram á nýja árið.

Svona var þetta nú einu sinni.....
66 Charger, 451, .582" lift, 10" conv.  4.10:1. 1868 kg/4118 lbs.
60=1,994, 11,79@114 mph venjuleg Firestone radial dekk.
Íslandsmeistari MC 2007, 2008 og 2009.