Það er mjög gott að eiga við þá. Ég lenti einu sinni í því að fá rangt afgreitt hjá þeim (hlutur sem var rangt merktur, átti að passa í 81 Blazer K5 en var fyrir 95-98 chevy) og þeir greiddu það til baka án þess að krefjast þess að ég skilaði hlutnum.
Ég hef alltaf verið í tölvupóst samskiptum við þá áður en ég klára pöntunina og þeir hafa alltaf leyst úr öllum vandamálum.