Kvartmílan > Almennt Spjall
Viðhald á braut...
Heddportun:
--- Quote from: "Nóni" ---
--- Quote from: "Kiddi" ---Mér fannst nú bara gaman að sjá þessar myndir.. og tók smá skot á nýju stjórnina í leiðinni en það fer greinilega mjög illa í suma....
Ég er persónulega mjög fúll yfir að heyra að ég hafi ekki gert neitt fyrir þennan klúbb, ef að vinnan er metin svona þá er ekki skrítið að þið fáið lítið sem ekkert af henni....
Ég aðstoðaði mikið við Bílasýningu '04, starfaði oft langt fram á kvöld við æfingar þegar þær byrjuðu fyrst, hef tekið þátt í tiltektardögum o.m.fl. eins og þið báðir VITIÐ :!:
KR.
--- End quote ---
Kiddi þú ert æði, sorrý að ég skildi hafa opnað munninn, væri samt alveg til í að sjá þig í keppni einmitt vegna þess að mér fannst tilkomumikið að sjá bílinn þinn keyra á brautinni. Hann nánast prjónaði af stað.
Finnst þetta hins vegar vera almennt viðkvæði hjá mörgum, það þarf að bæta þetta og gera hitt og og og og og.............
Hvað getum við gert fyrir klúbbinn? Það er spurningin.
--- Quote from: "Boss" ---Mér fynnst ekkert skrýtið að það sé erfitt að fá finna sjálfboðaliða fyrir KK
--- End quote ---
Það hefur verið þannig í gegn um tíðina að menn hafa unnið fyrir klúbbinn sinn af ánægjunni einni saman, ég veit til dæmis að í fornbílaklúbbnum er aldrei talað um peninga eða annað fyrir vinnu. Ég borga mín félagsgjöld glaður, borgaði fyrir konuna í fyrra og kannski vegna míns eigin slóðaháttar gleymdi ég að rukka fyrir sumt sem ég lagði út fyrir. Hvað um það, maður á sennilega bara að þegja og gleypa, það er best þannig.
Gaman væri að menn myndu nú hafa það í sér að skrifa undir nafni þegar þeir eru að tjá sig, þú ættir allavega að hafa til þess kjark "Stjóri".
Hér á annars að vera skemmtilegt að lesa og skrifa þannig að ég vil bara endilega biðja menn um að hafa þennan hérna fyrir augunum :D
Kv. Nóni
--- End quote ---
Ég hef unnið sjálfboðavinnu frá því ég man eftir mér svo ég þarf ekki fyrirlestur um hvernig sjálfboðaliðavinna gengur fyrir sig :D
Svona svar eins og Kiddi fékk er ekki fallegt. :D Eiga stjórnarmenn ekki að ná í styrki úr ríkissjóð til að gera þetta en ekki félasgmenn? :D
Kiddi ræður því sjálfur hvort hann vill koma eða ekki og það er spurning hvort það sé eitthvað hægt að gera til að auka áhugann á að menn mæti
:D
kveðja :D
Heddportun:
Samt ánægður með að sjá að það sé byrjað að auglýsa eftir aðstoð í sumar :D
Þetta eru framfarir :D
Nóni:
--- Quote from: "Boss" ---Samt ánægður með að sjá að það sé byrjað að auglýsa eftir aðstoð í sumar :D
Þetta eru framfarir :D
--- End quote ---
Ég veit enn ekki hver þú ert, þú þarft ekkert að óttast því að mín skoðun er sú að virðing manna eykst ef þeir sýna sitt rétta andlit.
Kv. Nóni
Preza túrbó:
Nóni, athugaðu hver er með félagsnúmerið 945. Held að þú getir þá séð hver "BOSS" er :)
En sjálfur ættla ég að mæta á fund í kvöld niður í HAUKAHÚSIÐ í strandgötu og greyða félagsgjöldin mín (loksins)
Kveðja:
Dóri G. :twisted: :twisted:
Meðlimur 751.
Heddportun:
Heheh skarpur Dóri G,vonandi er Nóni búinn að fynna listann frá því í fyrra :D
Skoðanir og athugasemdir mínar komst allveg jafn vel á framfæri þó ég skrifa ekki undir nafni og er líka mitt val :D
Kanski maður sendi þér EP :D
Navigation
[0] Message Index
[#] Next page
[*] Previous page
Go to full version