Kvartmílan > Aðstoð

3.8L Buick blöndungur! Passa þessir?

(1/2) > >>

siggithor:
Núna er ég í smá vafa, mig vantar blöndung við Buick 3.8L v6 turbo en þar sem ég er ekki inní ameríska vélarheiminum og hvað þá blöndunga þá er ég ekki 100% viss þegar á að fara panta. Gamli er Holley, finn hvergi neitt annað sem stendur á honum en það. Hann er líka 4ra hólfa.

Ég fann einn um daginn, sem er sagður passa við þessa vél en þá '81 árgerðina, getur vel verið að þetta smellpassi allt saman en þessi söluaðili hefur ekki sent mér svar.
Uppgerður GM blöndungur fyrir '81

Svo fann ég þennan td. og nóg af svipuðum, Holley Hi-Perf. 750cfm 4H, á svipuðu verði og hann lítur nánast alveg eins út og allt það.
Flottur þessi.. en passar hann?

Endilega komið með einhver ráð svo ég taki ekki sénsinn og panti einhvern sem mér líst best á.

Kv.

baldur:
Væri ágætt að vita um hvaða árgerð er að ræða.

siggithor:

--- Quote from: "baldur" ---Væri ágætt að vita um hvaða árgerð er að ræða.
--- End quote ---


Já, ég gleymdi því en ég veit því miður ekki hvaða árgerð vélin er, ég veit samt að þessi vél er í gangi '80-'89. Þyrfi bara að senda vélarnúmerið og spyrjast um hjá þeim.

kv.

baldur:
Er þessi vél með suckthrough blöndungi eða?

siggithor:

--- Quote from: "baldur" ---Er þessi vél með suckthrough blöndungi eða?
--- End quote ---


Núna veit ég það bara ekki, hvernig eru 'suckthrough' blöndungar?
Eins og ég sagði veit ég sem mest lítið um blöndunga. Mig vantar bara einhvern sem passar við þessa vél og virkar.

Navigation

[0] Message Index

[#] Next page

Go to full version