Jæja ég mátti setja hérna inn smá fréttir bæði af æfingunni og almennt af þeim keppendum sem ég hitti í gærkvöldi.
Æfingin gekk vel og náðu sumir þeim árangri sem þeir sóttust eftir, aðrir fóru heim með bilaðan bíl eða sneyptir vegna hjálmaleysis og vöntunar á tryggingarviðauka, þó er skemmtilegt frá því að segja að 2 hjóla menn bættust í hóp meðlima KK, og hvet ég alla þá sem komu og vildu keyra en voru ekki í klúbbnum né með hjálma og blessaðan tryggingaviðaukann að verða sér úti um þetta og koma og vera með á morgunn laugardag í brakket keppninni. Alla vega kemur hér eitthvað af tímum:
Gísli Sveinsson og félagi hans Garðar voru léttir á því og mjög ánægðir með æfinguna og bíllinn, Bláann Challenger RT 70" 493 cid sem bilar aldrei (7 9 13) sem gengur undir gælunafninu Skutlan, sem er algjörf réttnefni því bíllinn er algjör skutla, bíllinn er götu bíll og original nema á slikkum í keppnum og æfingum og svo þetta venjulega sem bílarnir þurfa að hafa á keppnum, nú Skutlan var að fara á 10,11 brautina og 60f 1,501 best, þeir félagar voru að vonum ánægðir og sögðust geta sofnað brosandi
Stígur A. Herlufsen náði bestu 60f sínum með 1,424 og fór best 10,01 hann skemmti sér konunglega eins og alltaf uppá braut og sagðist helst þurfa að laga ventlagormana hjá sér og jafnvel stífa þá, hann er tilbúinn fyrir laugardaginn.
Leifur Rósenbergsson á pintóinum eina sanna kom við og upplýsti mig um það að eftir að hann skemmdi bílinn aðeins á síðustu keppni væri hann búinn að smíða í hann nýjan framdempara öxul og búinn að panta nýtt dekk, en verður ekki tilbúinn fyrir laugardag væntanlega, en gæti hugsanlega verið til í Akureyrar sandinn, ef hann gæti samið við.....sína
Hjólin voru merkt númerunum 11, 12, 13 og 14 og asninn ég náði ekki að tala við þá eftir að þeir keyrðu svo að nöfn þeirra og hjóla gerð og allt vantar hjá mér en það má alltaf senda mér ep svo að ég geti sett það inn en hér koma bestu tímarnir þeirra:
11: fór best 60f á 1,999 og brautina á 11,38!
12: fór best 60f á 1,759 og brautina á 10,15!
13: fór best 60f á 1,899 og brautina á 11,34!
14: fór best 60f á 1,769 og brautina á 11,21!
Það var mjög gaman að fá allavega þessa 4 uppá braut að hjóla og þetta eru allt snillingar að mínu mati og eru að gera eitthvað sem ég gæti aldrei, svo að kúl strákar haldiði áfram að koma!!!
Nú svo var þarna Nissan sem fór best 60f á 2,430 og brautina á 15,43 og Honda sem fór best 60f á 2,519 og brautina á 15,481.
Svo má ekki gleyma Impresunum sem voru 2 og önnur blá og hin grá og fór sú bláa best 60f á2,079 og brautina á 13,945 en gráa best 60f 2,024 og brautina á 14,16.
Já þetta er í megindráttum það sem átti sér stað í gærkvöldi og voru allir meira og minna ánægðir með sinn árangur, ég var hinsvegar mjög ánægð með alla og hafði gaman að þessu öllu sem endranær!
Takk Ingó Big og Kata mílubeib, ræsirinn og Vigfús og svo Stígur og Hálfdán!
Nú verð ég að bæta því við að Kári Hafsteins mun mæta á sandinn á Akureyri á dragganum og jafnvel á keppnina á morgunn!
Og Camaroinn hans Helga bilaði á síðustu keppni, það sem bilaði var blowerinn, hann bræddi úr sér og fór allur út og suður þannig að hann er pikkfastur og það tekur einhvern tíma að lagfæra þetta.