Landsmót FBÍ helgina 24. til 26. júní á Selfossi. Dagskrá mótsins er í stórum dráttum þessi, hópakstur verður austur föstudaginn 24. júní frá Essó Ártúnshöfða kl. 19, en mæting þar er kl. 18. Mótið verður síðan sett á Kambabrún kl. 20 og akstur niður gömlu Kamba fyrir þá sem vilja. Á laugardeginum verður fornbílasýning og bílaþraut, en árið 2003 voru um 110 bílar sýndir á sama stað. Dagskrá sunnudags er með sýningu og bílaþraut, akstri um Selfoss og fl. Móti er síðan slitið seinni part sunnudags. Nánar er hægt að lesa um Landsmótið á
http://www.fornbill.is