Hæ.
Hér fyrir nokkrum árum var flutt svokölluð "nefborunaræða" af þáverandi formanni Svavari Svavarssyni. Þar sem hann hélt smá tölu yfir okkur "keppendum" Og sakaði þá um að sitja heima og bora í nefið , í stað þess að mæta á keppni (þetta var í sjónvarpi allra landsmanna eftir fyrstu keppni það sumarið)
Og nú spyr ég líka, HVAR eru allir kappakstursbílarnir.????
Einar Birgis, Valur heitinn aumingi, Grétar Franks, Grétar Jóns, Aggi reglulegi, Þórður fiskikall, Teddi tommustokkur,(smá svona) og þetta eru bara nokkrir af þeim sem ættu að vera í OF.
Ég skal byrja. (á blaðsíðu 24 í afsökunarbókinni.) Sko ég átti tíma í permó og kippingu og svo þurfti ég að henda tyggjóinu mínu og og og ... Auðvitað hef ég enga afsökun og hefði átt að vera í pyttinum með þessum hetjum sl. laugardag
En vafalaust hafa allir hinir góðar ástæður fyrir sinni fjarveru.....
Ekki getur verið að menn séu bara í fýlu útí eitthvað eða einhvern...??? Er það nokkuð.??
Ég biðst auðmjúkrar afsökunar á þessu kæruleysi og LETI að vera ekki með. þar hafiði það...