Author Topic: 12.5.05 Engin æfing! Sorrý!  (Read 3215 times)

Offline Nóni

  • Staged and NOS activated
  • *****
  • Posts: 1.213
    • View Profile
    • http://www.icesaab.net
12.5.05 Engin æfing! Sorrý!
« on: May 12, 2005, 19:39:39 »
Því miður er engin æfing í kvöld fimmtudagskvöld, þetta kemur til vegna tæknilegra atriða hjá Landssambandi íslenskra akstursfélaga sem hefur sínar ástæður fyrir því.

Biðst ég afsökunar á þessu fyrir hönd stjórnar Kvartmíluklúbbsins sem gerði það sem í hennar valdi stóð til að útvega þetta leyfi.

Kv. Nóni
Kv. Nóni

_______________

Jón Gunnar Kristinsson,
með SAAB á heilanum.
www.icesaab.net

Betra er að blása en að sjúga!
SAAB 9000 túrbó 1987    12.100 @ 115.0

Offline Marteinn

  • Staged and NOS activated
  • *****
  • Posts: 658
    • View Profile
12.5.05 Engin æfing! Sorrý!
« Reply #1 on: May 12, 2005, 22:23:15 »
þetta er bara þreytt  :evil:


vonum að það verði æfing næsta fimmtudag :wink:
Subaru Impreza GF8 '98

Offline strumpur1001

  • In the pit
  • **
  • Posts: 55
    • View Profile
12.5.05 Engin æfing! Sorrý!
« Reply #2 on: May 12, 2005, 22:41:32 »
ahm, frekar þreytt.... menn fara segja úlfur úlfur þegar blásið er til æfinga...

Offline Jón Þór Bjarnason

  • Doing 20ft wheelies
  • ******
  • Posts: 3.888
    • View Profile
12.5.05 Engin æfing! Sorrý!
« Reply #3 on: May 13, 2005, 08:43:30 »
Er hægt að fá að vita ástæður fyrir þessu. Ég meina við verðum að geta treyst öllum dagsetningum sem hafa verið ákvarðaðar. Hvaða tæknilegu atriði eru þetta hjá Landssambandi Íslenskra Akstursfélaga? Eru þeir að reyna að skemma KVARTMÍLUNA? Það var nú vegna þeirra að ekkert varð af fyrstu keppni sumarsins. ATH ég er ekki að ráðast á neinn, langar bara að fá svör ef það er hægt. p.s. rosalega var nú gaman að sjá alla gömlu bílana á bílastæðinu fyrir framan Kolaportið í gær. ( fimmtudag)
S:899-3819
1995 Pontiac Firebird Trans Am
2006 VW Passat 2.0L HighLine
1974 VW Bjalla 1303 Engine street racing kit
1984 Pontiac Fiero 3800 series II supercharged

Offline Jón Þór Bjarnason

  • Doing 20ft wheelies
  • ******
  • Posts: 3.888
    • View Profile
12.5.05 Engin æfing! Sorrý!
« Reply #4 on: May 14, 2005, 11:18:25 »
HALLÓ ENGINN SVÖR :?:
S:899-3819
1995 Pontiac Firebird Trans Am
2006 VW Passat 2.0L HighLine
1974 VW Bjalla 1303 Engine street racing kit
1984 Pontiac Fiero 3800 series II supercharged

Offline firebird400

  • Staged and NOS activated
  • *****
  • Posts: 2.307
    • View Profile
12.5.05 Engin æfing! Sorrý!
« Reply #5 on: May 14, 2005, 15:04:13 »
Sæll Nonni

Ég er kannski ekki sá sem á að vera að svara þér en eftir því sem ég best veit þá er búið að greiða úr þessari flækju og það verða engin vandamál sem eftir er sumars.

Sem sagt bara endalaus hamingja í allt sumar :D
Agnar Áskelsson
6969468

Offline maggifinn

  • Staged and NOS activated
  • *****
  • Posts: 1.291
    • View Profile
12.5.05 Engin æfing! Sorrý!
« Reply #6 on: May 14, 2005, 19:30:12 »
er það ekki Íþróttabandalag Hafnarfjarðar sem á að gefa leyfi fyrir þessu??    
 
    hvað kemur LÍA þetta við???  Er KK enn undir hælnum á LÍA??

Offline duster 440

  • Playing NHRA on playstation
  • *
  • Posts: 2
    • View Profile
12.5.05 Engin æfing! Sorrý!
« Reply #7 on: May 15, 2005, 21:54:06 »
HALLÓ var ekki búið  að samþykkja það á aðalfundi 2000 og eitthvað  
að ganga úr LÍA og eiga ekki samskipti við þá meir.
Og ganga í ÍSÍ
Hvað er að ske????
Hvar eru jammararnir sem stjórnuðu þessu á gullárum klúbbsinns

HEMI FOR EVER

Offline baldur

  • Administrator
  • Staged and NOS activated
  • *****
  • Posts: 2.464
    • View Profile
    • http://foo.is
12.5.05 Engin æfing! Sorrý!
« Reply #8 on: May 15, 2005, 22:06:20 »
KK eru ekki aðilar að LÍA. Það var bara dómsmálaráðuneytið sem ákvað það víst allt í einu að LÍA skyldi sjá um alla leyfaveitingu vegna mótorsportkeppna og æfinga.
Baldur Gíslason

1995 Mitsubishi Eclipse GSX 4x4 turbo
1992 Polaris Indy RXL 136" turbo

Turbo or no go.

Offline duster 440

  • Playing NHRA on playstation
  • *
  • Posts: 2
    • View Profile
12.5.05 Engin æfing! Sorrý!
« Reply #9 on: May 15, 2005, 22:48:15 »
Ég hef nú lesið þessa nýju reglugerð og það hefði nú ekki þurft annað fyrir stjórn KK ef hún hefði eitthvað bein í nefinu en að kvarta yfir henni við umboðsmann alþingis  því hún brýtur í bága við íslensk stjórnsýslulög.
EINOKUN EKKI LIÐIN Í DAG
Frekar en hjá NHRA

Hemi for ever

Offline Björgvin Ólafsson

  • Staged and NOS activated
  • *****
  • Posts: 1.159
    • View Profile
12.5.05 Engin æfing! Sorrý!
« Reply #10 on: May 16, 2005, 23:14:26 »
Quote from: "baldur"
KK eru ekki aðilar að LÍA. Það var bara dómsmálaráðuneytið sem ákvað það víst allt í einu að LÍA skyldi sjá um alla leyfaveitingu vegna mótorsportkeppna og æfinga.


Rangt!

Samgönguráðuneyti hefur með þessi mál að gera í dag og reglugerðinni var breytt þannig að LÍA eitt hefur rétt á að fá úthlutað leyfi frá viðeigandi sýslumönnum, fyrir keppni á faratækjum með 4 hjól eða fleiri.

LÍA viðurkennir einungis, eins og frægt ætti að vera orðið, keppnishald hjá akstursíþróttafélögum innan sinna vébanda.  Því langar mig svolítið til að vita hverning leyfismálum var háttað í síðustu keppni KK, er KK komið í LÍA?

Eitt enn, fyrst það er nú búið að opna þessa umræðu. Æfing er æfing, ekki keppni og kemur LÍA þar af leiðandi ekki við - nema ef um sé að ræða aðildarfélag innan LÍA 8)

kv
Björgvin

Offline Nóni

  • Staged and NOS activated
  • *****
  • Posts: 1.213
    • View Profile
    • http://www.icesaab.net
já........
« Reply #11 on: May 19, 2005, 00:54:56 »
Sælir strákar, það er leitt að enginn af hinum reyndari mönnum í stjórn kk hafi séð sér fært að tala um þetta hérna þar sem verið er að spyrja um þetta, en nei kk er ekki aðili að LÍA, og já við þurfum að sækja um leyfi til þeirra í sumar allavega vegna leyfisbreytinga frá ráðuneytinu. Já kk er aðili að ÍBH og ÍSÍ. Björgvin, við erum ekki gengnir í LÍA heldur eru þeir nú orðnir handhafar leyfisveitinga fyrir keppni og æfinga ökutækja á fjórum hjólum eða fleira og þeir létu okkur hafa leyfi fyrir keppnum eins og ekkert væri utan smá hnökra hérna vegna smá breytinga á orðalagi sem gera þurfti eftir að leyfi var gefið.

"Þú sem kallar þig duster 440"

Vinsamlegast skrifaðu undir nafni framvegis ef þú hefur eitthvað fram að færa svo maður viti hver þú ert, ég væri til í að geta hringt í þig og talað við þig um þessi svokölluðu gullaldarár klúbbsins, hvar eru þau? Hvers vegna voru þau? Hvar eru félagar klúbbsins núna? Eru þeir fluttir til útlanda? Eru þeir allir gjaldþrota? Eru þeir kannski svo miklir "jammarar" að það eru ekki til neinir peningar fyrir öðru en búsi? Keppnisþrekið er allavega ekki mjög mikið.
Og finnst þú ert svona mikið inni í þessum málum, hvers vegna ert þú ekki boðinn og búinn að hjálpa stjórninni í þeim málum sem hún á í að berjast? Ég sé þig ekki leggja mikið af mörkum annað en röfl, og það kemur nú frekar seint að mínu mati þegar öll leyfi eru í höfn.


Kv. Nóni
Kv. Nóni

_______________

Jón Gunnar Kristinsson,
með SAAB á heilanum.
www.icesaab.net

Betra er að blása en að sjúga!
SAAB 9000 túrbó 1987    12.100 @ 115.0