Kvartmílan > Almennt Spjall
Föstudagsæfingar
Nóni:
Sæll Dóri, ekkert mál með frekjuna, ég er vanur. :D :D
Það er komin niðurstaða í málið með æfingar, þær verða opnar öllum svo lengi sem þeir eru meðlimir í Kvartmíluklúbbnum. Þá verða þær haldnar á fimmtudögum í sumar vegna ýmissa ástæðna.
Í einhverju bölvuðu rugli held ég að ég hafi þurrkað út einn póst frá þér Dóri, eða einhverjum öðrum. Þetta var óviljandi og biðst ég afsökunar.
Kv. Nóni
Kiddi:
"Það er komin niðurstaða í málið með æfingar, þær verða opnar öllum svo lengi sem þeir eru meðlimir í Kvartmíluklúbbnum"
Glæsilegt.... Hvernig er það, þú nefnir fimmtudagskvöld.. Eru við þá að tala um að nýja félagsheimilið sé að fara að komast þá í notkun eða??
Preza túrbó:
Ekkert mál Nóni minn. Þú hefðir mátt þurka einn "Nóni :?: :?: " Póstinn í leiðinni. það er fínt að vita af æfingunum þá kasski breggður maður sér uppá braut annars lagið, fyrir utan keppnir. :D :D :D.
En hérna Nóni þetta með Hjólið hans Óla :?: hvernig er það :?: :D
Kveðja:
Dóri G.
Nóni:
Sælir, það kom ákveðinn afturkippur í lagningu rafmagns upp að svæðinu okkar vegna tregðu hjá rafveitunni í Hafnarfirði þó að fyrirheitin hafi verið fögur þannig að við erum að vinna að annarri lausn sem við sjáum ekki fyrir endann á ennþá.
Hjólið hans Óla er vinnslu núna, komin þessi líka rosa kúppling til að koma sér af stað þannig að þetta ætti að smella saman hjá honum. Þið sáuð eflaust myndir og myndskeið af því á síðunni hjá mér en sjaldan er góð mynd of oft skoðuð og hér fáið þið eintak.
http://www.icesaab.net/pix/Firstrun1.WMV
Kv. Nóni
Preza túrbó:
coooool hjól verður gaman að sjá endannlega mynd af því
Navigation
[0] Message Index
[*] Previous page
Go to full version