Kvartmílan > Aðstoð
Camaro vandamál! HJÁLP
JONNI:
Hæ
Ég er nánast viss um að dælan sé farin, þó það komi benzín þrýstingur er hann sennilega ekki nógu hár til að hann fari í gang, þeir (LT1) þurfa minnst um 40 punda þrýsting til að ganga.
Tékkaðu á því hvort hann taki ekki við sér ef þú sjússar hann inn um inntakið.
Vona að þetta hjálpi!
Kv, JSJ
ADLER:
Svo byrja nú skemtilegheitin þegar á að fara að skipta um þetta dælu kvikindi því það þarf helst að taka hásinguna undan bílnum svo hægt sé að koma tanknum niður en margir sem hafa lent í þessu hafa gert gat í boddýið fyrir ofan tankinn og tekið dæluna þannig uppúr og svo er sett ný boddí plata yfir sem er bara kíttuð og skrúfuð það er eiginlega best að gera þetta svona því að þessi dæla einsog menn hafa sagt er mjög viðkvæm og því getur þurft að skipta um hana oft .
-Siggi-:
Það eru nú ekki margir sem hafa gatað bílinn sinn fyrir þetta.
Ég man eftir að hafa séð einn 3gen þannig.
Það var viðbjóðslegt, ég mundi ekki tíma eyðileggja bílinn fyrir þetta.
Dælan er með rörum áföstum sem ná út fyrir tankinnn
þannig að það er ekki nóg að gera eitt lítið gat.
Hásingin þarf ekki að fara alveg undan, það er nóg að slaka henni vel niður.
ADLER:
'Eg veit að það þarf að gera gat sem er svona í stærra lagi en með frágang á svona þá verður útkoman aldrei betri en geta þess sem vinnuna vinnur ég er reyndar að miða við hvernig ég myndi gera þetta en það er nú kannski ekki að marka ég er búinn að vera í boddy viðgerðum nánast allt mitt líf
Navigation
[0] Message Index
[*] Previous page
Go to full version