Kvartmílan > Almennt Spjall
Smá upplýsingar um toll vantar!
baldur:
--- Quote from: "Gizmo" ---Vésleðar, mótorhjól og fjórhjól eru öll í 30% vörugjaldi, við það bætist svo VSK.
semsagt, kaupverð með öllum flutning og tryggingum hingað til lands x 1,3 x1,245 og þá hefur þú ca verð.
Dæmi;
Hjól útúr búð úti 250.000.- isk
Flutningur og tryggingar 50.000.-
Samtals 300.000.-
Viðbættur Tollur 30% gerir samtals 390.000.-
sem bætist svo 24,5% VSK á þá er hjólið orðið 485.550.-
Skráningargjöld, númer ofl ca 10-15 þús og þá ertu kominn í 500.000.- eða kaupverð úti X 2
--- End quote ---
Maður greiðir ekki vörugjöld af flutningskostnaði.
Valur_Charade:
--- Quote from: "chevy54" ---það eru engir tollar af kvartmílubílum!!!
--- End quote ---
já ég tók reyndar fram að ég væri að tala um fjórhjól :roll: hehe
en ég get semsagt bara margfaldað verðið á hjólinu með tveimur sirka?
(takk fyrir góð viðbrögð) :wink:
TONI:
Best að láta fylgja með með ódýru hjólin að heimasíðan er www.staupasteinn.ehf.is það eru samt ekki öll hjólin þar. Kv. TONI
Nonni:
--- Quote from: "baldur" ---
Maður greiðir ekki vörugjöld af flutningskostnaði.
--- End quote ---
Stofn til álagningar vörugjalds er CIF íslenskur staður. Í því er því flutningur og vátrygging innifalin. Þannig að, jú maður greiðir vörugjöld af flutningskostnaði.
Gizmo:
og svo er maður alltaf plokkaður um umsýslugjöld, pappírsgjöld, kvittanir og eyðublöð, bréfaklemmur, hefti, pennastrik ofl ofl hjá tollinum, flutningsaðila, skráningarstofu, sendibíll og þess háttar. Borgar sig að bæta við ca 25 þúsund í allskyns rugl sem ómögulegt er að sjá fyrir.
Navigation
[0] Message Index
[*] Previous page
Go to full version