Author Topic: Árshátíð Kvartmíluklúbbsins 2018  (Read 3036 times)

Offline SPRSNK

  • Stjórn KK
  • Staged and NOS activated
  • *****
  • Posts: 1.807
    • View Profile
Árshátíð Kvartmíluklúbbsins 2018
« on: January 23, 2018, 22:24:46 »
Árshátíð Kvartmíluklúbbsins verður haldin laugardaginn 3. febrúar í félagsheimili klúbbsins í Hafnarfirði.

Mæting er stundvíslega kl. 19:00 og borðhald hefst kl. 20:00.

Miðaverði verður stillt í hóf 6.990 kr. - miðasölu lýkur 1. febrúar 2018
Hægt er að greiða með tvennum hætti:
Fara í vefverslun klúbbsins og greiða þar http://kvartmila.is/is/product/midi-a-arshatid-kk
eða millifæra á bankareikning klúbbsins:
Reikningsnúmerið er: 0544-26-111199, kt.: 660990-1199
Til að staðfesta skráningu þarf að senda tölvupóst með nafni og fjölda á jonbjarni@kvartmila.is
Salurinn okkar tekur 48 manns í sæti.

Skemmtinefndin hefur setið sveitt við að skipuleggja hin ýmsu skemmtiatriði til að gera kvöldið ógleymanlegt.

Kvartmíluklúbburinn selur guðaveigar af ýmsum gerðum á mjög vægu verði, svo enginn ætti að þurfi að drösla neinu með sér. Klúbburinn býður upp á gos.

FB viðburður: https://www.facebook.com/events/1540552546065658/

Hér að neðan má sjá glæsilegan matseðil, að þessu sinni verður það í hlaðborðsstíl.

Forréttur
Humarsúpa

Aðalréttur
Grillaður lambavöðvi og kalkúnabringa

Meðlæti
Thymiankartöflur, ferskt rótargrænmeti og ferskt salat

Eftirréttur
Súkkulaðimús með ferskum berjum og myntuís.