Author Topic: MSÍ - flokkar í tímaati og kappakstri  (Read 3984 times)

Offline SPRSNK

  • Stjórn KK
  • Staged and NOS activated
  • *****
  • Posts: 1.807
    • View Profile
MSÍ - flokkar í tímaati og kappakstri
« on: December 01, 2017, 15:23:15 »
Flokkar

8.1. Moto 3+ (M3)
8.1.1. Leyfð hjól
8.1.1.1. 144cc og minna, tvígengis með einum cyl
8.1.1.2. 250cc og minna, fjórgengis með einum cyl
8.1.2. Allar breytingar leyfðar, svo framarlega að þær standist öryggisreglur í kafla 9.

8.2. Moto 4 ½ (M4)
8.2.1. Leyfð hjól
8.2.1.1. 250cc og minna, tvígengis með einum til fjórum cyl
8.2.1.2. 250cc til 450cc, fjórgengis með einum til fjórum cyl
8.2.2. Allar breytingar leyfðar, svo framarlega að þær standist öryggisreglur í kafla 9.

8.3. Rookie 600 (R)
8.3.1. Leyfð hjól
8.3.1.1. 600cc og minna, fjórgengis með fjórum cyl.
8.3.1.2. 675cc og minna, fjórgengis með þremur cyl.
8.3.1.3. 750cc og minna, fjórgengis með tveimur cyl.
8.3.2. Hjólið skal vera eins og það kemur frá framleiðanda. Leyfilegt er að skipta út búnaði sem bilar fyrir upprunalegan/homologated eða eins og upprunalegt/homologated.
8.3.3. Leyfilegar breytingar.
8.3.3.1. Rafskiptir.
8.3.3.2. Hljóðkútur / loftsía / bensíntölva.
8.3.3.3. Vírofnar bremsuslöngur.
8.3.3.4. Skipta má um gorma miðað við þyngd ökumanns.

8.4. Supersport (SS)
8.4.1. Leyfð hjól
8.4.1.1. 600cc og minna, fjórgengis með fjórum cyl.
8.4.1.2. 675cc og minna, fjórgengis með þremur cyl.
8.4.1.3. 750cc og minna, fjórgengis með tveimur cyl.
8.4.2. Hjól skulu standast reglur útlistaðar í viðauka 2.

8.5. Superbike (SB)
8.5.1. Leyfð hjól
8.5.1.1. 1000cc og minna, fjórgengis með fjórum cyl.
8.5.1.2. 1000cc og minna, fjórgengis með þremur cyl.
8.5.1.3. 1200cc og minna, fjórgengis með tveimur cyl.
8.5.2. Allar breytingar leyfðar, svo framarlega að þær standist öryggisreglur í kafla 9.

8.6. Supermoto (SM)
8.6.1. Leyfð hjól
8.6.1.1. 800cc og minna, tvígengis með einum cyl.
8.6.1.2. 800cc og minna, fjórgengis með einum cyl.
8.6.2. Allar breytingar leyfðar, svo framarlega að þær standist öryggisreglur í kafla 9.

Öryggisatriði
9.1. Almennt
9.1.1. Eftirfarandi skal breyta fyrir kappaksturskeppni:
9.1.1.1. Stefnuljós skulu tekin af
9.1.1.2. Miðju og hliðarstandari skal tekinn af
9.1.1.3. Bremsuljós og flauta skulu aftengd og má taka af
9.1.1.4. Öll ljósgler skulu tekin af eða tryggja með teypi
9.1.1.5. Farþega fótstig, númeraplötur og númerafestingar skulu tekin af
9.1.1.6. Allir olíuaftöppunarstaðir og olíusíur skulu vera vírbundnir. Ásamt að
allir átöppunarstaðir skulu vírbundnir.
9.1.1.7. Öll öndunarrör skulu lokast af í lokuðu boxi/íláti/umbúðum.
9.1.1.8. Bremsudælur aftan og framan skulu vera vírbundnar svo boltarnir sé
fastir
9.1.1.9. Keðjulásar skulu festir með vír eða sílikon lími.
9.2. Byggingafrelsi
9.2.1. Uppfyllir hjólið kröfurnar í reglugerð og viðaukum fyrir viðkomandi keppni, eru
engar takmarkanir hvað varðar val á tegund eða önnur byggingarleg hönnun.
9.2.2. Tveggja hjóla ökutæki sem gefur eitt spor
9.3. Aukaaflgjafar
9.3.1. Aukaaflgjafa (Td. Turbó eða nítró) má einungis nota til að setja met.
9.4. Titanium
9.4.1. Notkun af titanium er bönnuð í eftirfarandi:
9.4.1.1. Stell
9.4.1.2. Framgafal
9.4.1.3. Afturgaffal
9.4.1.4. Stýrislegum
9.5. Hjólalegur úr áli eru bannaðar
9.6. Gírar
9.6.1. Hámark 6 gírar.
5
9.7. Skermun á keðju
9.7.1. Keðjuna skal verja þannig að ökumaður geti ekki hlotið skaða af. Hlíf skal fest
þannig að ökumaður eigi ekki á hættu á að klemmast milli neðri hluta keðju og
aftara tannhjóls.
9.8. Púst
9.8.1. Púströr og hljóðkútur skal uppfylla reglur MSÍ um búnað keppnishjóla. Mæla
skal í 50cm fjarlægð frá enda hljóðkúts og í 45 gráðum frá hlið eða beint fyrir
ofan.
9.8.2. Mælt skal:
9.8.2.1. Einn til fjóra cyl á 5500 Rpm
9.8.2.2. Hámarks hávaði í keppnisskoðun 107 dB, en + 3dB mælt eftir keppni.
9.9. Inngjöf
9.9.1. Inngjöf skal uppfylla reglur MSÍ um búnað keppnishjóla.
9.10. Eldsneyti
9.10.1. Einungis leyfilegt eldsneyti sem selt er á dælu í almennri sölu.
9.11. Fótstig
9.11.1. Fótstig skulu hafa rúnaða enda og skulu þeir mynda að lágmarki 8mm radíus
9.12. Hemlar
9.12.1. Bremsur skulu uppfylla reglur MSÍ um hemla
9.13. Bretti
9.13.1. Bretti skulu ná að hluta til yfir báðar hliðar á dekki. Frambretti skal dekka að
lágmarki 100° af ummáli dekksins. Vinkillinn sem myndast við línu sem dregin
er í gegnum fremri hluta brettisins að nafi framhjóls skal vera samkvæmt mynd
í viðauka 1
9.13.2. Afturbretti skal dekka að lágmarki 120° af ummáli afturdekks.
9.14. Fairing / Kápa
9.14.1. Framhjól skal vera sýnilegt frá báðum hliðum ökutækisins. Sjóngler á fairingu /
kápu skulu varin svo ökumaður eigi ekki á hættu á að skerast eða skrámast.
9.14.2. Fairing/Kápa sem ökutæki er framleitt með eða samþykkt af FIM eru
samþykktar.
9.14.3. Mál á fairingu/kápu sjá Viðauki 1.
9.15. Dekk og felgur
9.15.1. Felgur skulu hafa ummál uppá minnst 400mm. Karbon eða magnesium felgur
eru bannaðar nema hjólið sé framleitt þannig eða samþykkt af FIM.
9.15.2. Í Hringakstri skal lágmarksmunstur vera 2,5mm. Gildir fyrir öll dekk.
9.15.3. Dekkjahitarar eru leyfðir.
9.15.4. Aðeins má notast við dekk sem eru leyfileg til götuaksturs. Í rigningu má notast
við regndekk. Dekk af full slick gerð eru eingöngu leyfð í SuperMoto (SM).
9.16. Afturljós
9.16.1. Í keppni skulu öll hjól hafa rauð ljós aftan á hjólinu. Þetta ljós skal vera kveikt í
regnveðri.
9.16.2. Ljósið skal lýsa samhliða miðlínu mótorhjólsins. Ljósið skal sjást greinilega
aftanvið hjólið og skal sjást minnst 15° frá bæði hægri og vinstri hlið hjólsins.
9.16.3. Ljósið skal vera fest á öruggan hátt aftast á mótorhjólið næst miðlínu hjólsins.
9.16.4. Ef upp kemur ágreiningur um hvort ljósið sé fest á öruggan hátt, staðsetningu
eða hvort ljósið sjáist greinilega tekur keppnisstjóri lokaákvörðun.
9.16.5. Styrkur ljóssins skal nema 10­15Watta glóperu eða 3­5Watta LED ljósi.
9.16.6. Ljósið skal loga þegar kveikt hefur verið á því. Blikkljós eru ekki leyfileg
9.16.7. Spennufæðing að ljósi má vera sjálfstæð.

Viðauki 2.
1. Cylender/Strokkar
1.1. Ekki er leyfilegt að bora út strokka eða breyta lögun strokka.
1.2. Breyta/skipta má hedd pakkningu til að auka þjöppun eða til að gera við vörpun á
yfirborði strokks.
1.3. Yfirborð strokka skal vera orginal/homologated
2. Stimplar/bullur
2.1. Engar breytingar leyfðar, stimplar/bullur skulu vera upprunaleg/homologated.
2.2. Ekki er leyfilegt að pússa eða létta.
3. Stimpilhringir/bulluhringir
3.1. Skulu vera upprunaleg/homologated vélahlutar með engum breytingum.
3.2. Allir stimplihringir skulu vera áfastir.
4. Stimpil pinnar og clips
4.1. Skulu vera upprunaleg/homologated vélahlutar með engum breytingum.
5. Stimpilstangir
5.1. Skulu vera upprunaleg/homologated vélahlutar með engum breytingum.
6. Sveifarás
6.1. Skal vera upprunaleg/homologated vélahlutur með engum breytingum.
6.2. Polishing and lightening is not allowed
6.3. Breytinar á flywheel eru ekki leyfðar
9
7. Crankcase / Sveifaráshús
7.1. Skal vera upprunaleg/homologated vélahlutur með engum breytingum.
7.2. Ekki leyfilegt að bæta við dælu til að búa til vacuum í sveifaráshúsi.
8. Hedd
8.1. “Portun og plönun” á heddi er leyfð ásamt brennsluhólfi til að auka þjöppu.
8.2. Hverskyns suða er bönnuð.
8.3. Engar breytingar leyfðar á cam box eða ventlum.
8.4. Throttle body intake insulators má breyta.
8.5. Orginal/homologated ventlasæti skulu notuð en lögun má breyta.
8.6. Ventlar skulu vera orginal/homologated.
8.7. Skipta má um ventlagorma en þeir skulu vera eins margir og í orginal/homologated.
8.8. Ventla retainer(Sjá Viðauka 3) má breyta eða skipta út, en þyngd skal vera sú sama
eða hærri og í orginal/homologated.
8.9. Shim bucket / tappets (sjá Viðauka 3) skulu vera orginal/homologated.
9. Knastás
9.1. Knastás skal vera orginal/homologated
9.2. Breyta má tíma en opnun má ekki vera lengri en orginal/homologated.
9.2.1. Tímagír
9.2.1.1. Breyta má/skipta um tímagír
9.2.1.2. Knastása­keðju/strekkjara búnaði má breyta eða skipta út.
10. Dekk
10.1. Einungis dekk sem leyfð eru til sölu til almennings eru leyfð.
10.2. Mynstur dekks skal vera að lágmarki 2,5mm.
10.3. Handútskorin dekk eru ekki leyfð
10.4. Regndekk skulu hafa merkinguna “Not for Highway Use” eða “NHS”
11. Innspýtingar
11.1. Upprunaleg/homologated innspýting skal notuð án allra breytinga.
11.2. Loftinntaki má breyta eða skipta út.
11.3. Vacuum sleða má festa á opinni stöðu.
11.4. Rafstýrðir lokar (“ride­by­wire”) má aðeins nota ef homologated model er útbúið sama
kerfi. Hugbúnaði má breyta en öll öryggis kerfi og ferlar framleiddir af framleiðanda
skulu vera óbreyttir.
12. Gírar / gírkassi
12.1. Einungis eitt gír hlutfall í gírkassa er leyft fyrir keppnisárið. Ökumaður velur sjálfur
hlutfall og skilar inn til keppnisstjóra í upphafi tímabils.
12.2. Gírhlutfalls­ og efnishönnun er frjáls.
12.3. Brotinn/laskaður/ónýtur gírkassi telst sem ónýt vél.
12.4. Fjöldi gíra skal vera upprunaleg/homologated.
12.5. Primary gear skal vera uprunalegur/homologated.
12.6. Quick­shift kerfi er leyft.
12.7. Virkni gírkassa skal vera sú sama og í upprunalegum/homologated.
12.8. Breyta má um fram­ og afturtannhjól ásamt keðju á keppnistímabilinu. .
13. Kúplingskerfi
13.1. Wet eða dry týpur og virkni (barki/vökva) skal vera upprunaleg/homologated.
13.2. Skipta má um diska.
10
13.3. Skipta má um gorma.
13.4. Ytra kúplingshús/karfa skal vera upprunaleg/homologated en má styrkja.
13.5. Innri samsetningu má breyta eða skipta yfir í aftermarket. Slipper clutch leyfð.
13.6. Ekki má notast við kerfi (glussa, rafmagns eða loft) sem velur gíra ef það er ekki sett í
hjólið til að nota í venjulegum götuakstri.
14. Olíu­ og vatnsdælur og slöngur
14.1. Breytingar eru leyfðar en dæluhús, festipunktar og olíufæðing skal vera upprunaleg.
14.2. Olíuslöngum má breyta eða skipta út. Olíuslöngur sem bera jákvæðan þrýsting skulu,
ef skipt út, hafa styrkt innrabyrgði úr járni með kúplingu/skrúfaðum tengingum.
14.3. Vatnsdæla skal vera upprunaleg/homologated.
15. Vatnskassi / olíukælir
15.1. Breyta má vatnskassa/olíukæli í aftermarket eða bæta öðrum við sem passar í
upprunalega staðsetningu og krefst ekki breytinga á grind eða fairingum/hlífum.
15.2. Breytingar á upprunalegu/homologated olíukæli eru leyfðar nema þær krefjist breytinga
á grind eða fairingum/hlífum. Varmaskipti (olía/Vatn) má skipta út fyrir olíukæli.
15.3. Kælislöngur og forðabúr má breyta.
15.4. Breyta/skipta/fjarlægja má kæliviftublöð og víríngar.
15.5. Auka olíukælar eru ekki leyfðir.
15.6. Olíukæli má ekki festa á eða ofan við aurhlíf.
16. Lofthreinsarabox
16.1. Lofthreinsarabox skal vera upprunalegt/homologated, engar breytingar leyfðar.
16.2. Skipta má um loftsíu eða fjarlægja.
16.3. Dren í loftboxi skulu vera lokuð.
16.4. Öll hjól skulu hafa lokað öndunarkerfi. Öll olíu öndun skal vera tengd. Má fara í gegnum
olíusafntank og skal einungis lofta inn í loftboxið.
16.5. Loftintök frá fairingu/hlífum að loftboxi má breyta, fjarlægja eða skipta um. Ef
slöngur/rásir eru notaðar skulu þær tengdar við upprunalegt óbreytt inntak loftboxsins.
16.6. Engar hitarvarnir má setja á loftbox.
17. Púst
17.1. Breyta má/skipta um hljóðkúta og kerfi.
17.2. Hljóðkútar skulu vera í upprunalegum fjölda og skulu sitja á sama stað og
upprunaleg/homologated.
18. ECU
18.1. Tölvuflöss og breytingar á tölvu leyfðar en eftirfarandi er ekki leyft.
18.1.1. Traction control
18.1.1.1. Anti spin / rate of change of RPM.
18.1.2. Launch control.
18.1.3. Anti wheelie/prjón vörn.
18.1.4. Mótorbremsa/Closed loop engine brake control.
18.1.5. Corner by corner / distance based adjustments.
18.1.6. Rider adjusted trims.
19. Fjöðrun
Breytingar á fjöðrun (aftur og fram) eru leyfðar með takmörkunum hér að neðan.
19.1. Framgaffall
11
19.1.1. Verð á framgaffli ásamt öllum aukahlutum má ekki yfirstíga 2200£ (bresk pund)
án skatta í því landi sem verslað er við. Skattar og gjöld ekki reiknað með.
19.2. Afturfjöðrun
19.2.1. Verð á fjöðrun að aftan ásamt aukabúnaði má ekki yfirstíga 2000£ (bresk pund)
án skatta í því landi sem versla er við. Skattar og gjöld ekki reiknað með.
19.3. Ekki er leyfilegt að breyta fjöðrun sem keypt hefur verið, nema af aðila sem er
samþykktur af framleiðenda.
19.4. Rafstýrður fjöðrunarbúnaður er ekki leyfður nema ef hjólið er framleitt þannig.
19.5. Bæta má við eða breyta stýrisdempara. Stýrisdempari má ekki virka sem stýrislás.
19.6. Festingar fyrir dempara (framan og aftan) má ekki breyta.
20. Bremsur
20.1. Skipta má um fremri og aftari bremsudiska með aftermarket diskum sem skulu passa í
orginal bremsudælu og festingar. Ummál, offset, wheel mounting og ventilation system
skal vera sama og upprunalegt/homologated. Internal ventilated diskar eru ekki leyfðir
nema hjólið sé framleitt þannig.
20.2. Ekki er leyfilegt að skipta um höfuðdælu (master cylinder). Höfuðdæla skal vera
upprunaleg/homologated.
20.2.1. Aðeins stál diskar (max. Carbon innihald 2.1wt%) er leyft
20.3. Leyfilegt er að skipta stimplum í bremsudælum í álstimpla.
20.4. Leyfilegt er að skipta um bremsuslöngur.
20.5. Auka loftinntök fyrir bremsur eru ekki leyfð.
20.6. Nota má bremsuhlíf fyrir bremsuhandföng.
20.7. Bremsu­ handföng/fótstig má breyta svo fremi sem þau uppfylli kröfur í kafla 11.
20.8. ABS er ekki leyft.
20.9. Skipta má um bremsuklossa. Quick change type leyfilegt.
« Last Edit: December 02, 2017, 17:25:21 by SPRSNK »