Author Topic: íslandsmót í kvartmílu 3. umferð 2017  (Read 2619 times)

Offline SPRSNK

  • Stjórn KK
  • Staged and NOS activated
  • *****
  • Posts: 1.807
    • View Profile
íslandsmót í kvartmílu 3. umferð 2017
« on: August 05, 2017, 01:04:56 »
Laugardaginn 12 ágúst fer fram þriðja og síðasta umferð íslandsmótsins í kvartmílu 2017

Fyrri skráningu lýkur miðvikudaginn 9. ágúst kl. 23:00, en seinni skráningu lýkur föstudaginn 11. ágúst kl. 16:00

Til að taka þátt þarftu að hafa:
Gilt ökuskírteini
Skoðaðan bíl
Hjálm
Vera meðlimur í akstursíþróttarklúbb innan AKÍS
Skráð ökutæki þurfa vátryggingarviðauka en óskráð keppnistæki þurfa að vera með tryggingar

Þeir flokkar sem í boði fyrir bíla eru:
GF http://kvartmila.is/is/page/gf-flokkur
OF http://kvartmila.is/is/page/of-flokkur
MS http://kvartmila.is/is/page/ms-flokkur
GT http://kvartmila.is/is/page/gt-flokkur
SE http://kvartmila.is/is/page/se-flokkur
RS http://kvartmila.is/is/page/rs-flokkur
MC http://kvartmila.is/is/page/mc-flokkur
OS http://kvartmila.is/is/page/os-flokkur
HS http://kvartmila.is/is/page/hs-flokkur
ST http://kvartmila.is/is/page/st-flokkur
TS http://kvartmila.is/is/page/ts-flokkur
DS http://kvartmila.is/is/page/ds-flokkur
LS http://kvartmila.is/is/page/ls-flokkur
BRACKET http://kvartmila.is/is/page/bracket-flokkur

Þeir flokkar sem í boði fyrir mótorhjól eru:
Krossarar (K)
F hjól, Ferðahjól, önnur óbreytt hjól (F)
Hippar (H)
Götuhjól að 800cc (G-)
Götuhjól 800cc og yfir CC (G+)
Breytt götuhjól (B)
Opinn flokkur (O)
Unglingaflokkur (MU)

https://msisport.is/content/files/public/reglur_2016/Heildar%20reglur%20-%20ny%20utgafa%202016%20lokautgafa.pdf

Skráningarfrestur.
Formlegri skráningu lýkur miðvikudaginn 9. ágúst kl. 23:00
Seinni skráning verður leyfð til föstudagsins 11. ágúst kl.16:00 en þá bætast 2.000 kr. við skráningargjaldið

Keppnisgjöld og skráning:
ATH!! skráning telst ekki gild fyrr en keppnisgjöld hafa verið greidd
Keppnisgjald 6.000 kr., innifalið er keppnisskírteini
Við fyrstu skráningu á keppnistímabili bætist við 4.000 kr. gjald vegna slysatryggingar ökumanns.

Skráning fer fram hér:
Bílar:
http://skraning.akis.is/keppni/74
Mótorhjól:
https://docs.google.com/forms/d/e/1FAIpQLSeWCnVSlJQ1gy9kUtKVAlWjkUOyPND3Ot5tvMLPTlNsckrg_Q/viewform?usp=sf_link

Dagskrá:
10:00 Mæting keppanda
10:00 Skoðun hefst
10:30 Pittur lokar
11:00 Skoðun lýkur
11:10 Fundur með keppendum
11:30 Æfingarferðir hefjast
12:20 Æfingarferðum lýkur
12:30 Tímatökur hefjast
13:30 Tímatökum lýkur
13:50 Keppendur mættir við sín tæki
14:00 Keppni hefst
16:00 Keppni lýkur - Kærufrestur hefst
16:30 Kærufrestur liðinn
17:00 Verðlaunaafhenting á pallinum

Nánari upplýsingar
í síma 8473217 eða í E-maili: jonbjarni@kvartmila.is
Jón Bjarni

Offline SPRSNK

  • Stjórn KK
  • Staged and NOS activated
  • *****
  • Posts: 1.807
    • View Profile
Re: íslandsmót í kvartmílu 3. umferð 2017
« Reply #1 on: August 14, 2017, 10:07:23 »
Íslandsmót í kvartmílu fór fram laugardaginn 12. ágúst s.l.
Í keppninni var skráður til keppni í GF flokki, Þórður Tómasson á Camaro RS.
Þórður keyrði ferðir og staðfesti þær undir gildandi íslandsmeti í flokknum.
Óskað hefur verið eftir staðfestingu AKÍS á íslandsmeti hans í tíma í GF flokki 8,535 sek sem staðfest var með 8,544 sek.
Þá var jafnframt óskað eftir staðfestingu á íslandsmeti hans í hraða í GF flokki 162,52 mph sem staðfest var með 161,65 mph.

Skv. spyrnureglum AKÍS og þar með talið reglum um íslandsmet þá þarf að flokkaskoða keppnistæki eftir að met eru sett.
Keppnisstjórn hefur óskað eftir að AKÍS flokkaskoði keppnistæki Þórðar, Camaro RS, til að staðfesta að það uppfylli öll skilyrði GF flokks.

Offline SPRSNK

  • Stjórn KK
  • Staged and NOS activated
  • *****
  • Posts: 1.807
    • View Profile
Re: íslandsmót í kvartmílu 3. umferð 2017
« Reply #2 on: August 14, 2017, 10:09:52 »
Íslandsmót í kvartmílu 2017 - 3. umferð
Úrslit
Mótorhjól B flokkur
1. sæti Grímur Helguson
2. sæti Birgir Þór Kristinsson
Mótorhjól G- flokkur
1. sæti Ragnar Á Einarsson
2. sæti Jóhann Sigurjónsson
Mótorhjól G+ flokkur
1. sæti Jón H Eyþórsson
2. sæti Ólafur Ólafsson
Bílar OF flokkur
1. sæti Harry Þór Hólmgeirsson
2. sæti Leifur Rósinbergsson
Bílar ST flokkur
1. sæti Ingimar Baldvinsson
2. sæti Símon Helgi Wiium
Bílar TS flokkur
1. sæti Hilmar Jacobsen
2. sæti Einar Sindrason
Bílar GF flokkur
1. sæti Þórður Tómasson

Offline Dodge

  • Staged and NOS activated
  • *****
  • Posts: 2.204
    • View Profile
Re: íslandsmót í kvartmílu 3. umferð 2017
« Reply #3 on: August 16, 2017, 10:16:34 »
2. Tæki sem setur nýtt met skal fært til flokkaskoðunar og standast hana athugasemdalaust svo metið teljist gilt.

Svona hljómar reglan og þýðir einfaldlega að skoðunarmaður keppninnar fari yfir bílinn með ströngustu flokkareglur í huga, þetta þarf að gera strax á staðnum bæði svo tryggt sé að tækið sé eins og það var í keppni, og líka svo að vafamet séu ekki að skemma fyrir öðrum t.d. væri annar keppandi á lakari tíma en einnig undir meti þá þarf að afgreiða þetta strax svo hann fái sínar backup ferðir.

Þarna virðist vera sá misskylningur á ferli að það eigi að kalla til einhvern sérskipaðann skoðunarmann frá akís.

Spurning hvernig þetta verður leyst í þessu tilfelli, en í framtíðinni allavega skulum við passa að gera þetta strax og rétt eins og verið hefur.
Besti tími í kvartmílu. 10,697  60ft. 1,543  hraði. 114,5mph
Besti tími í 1/8. 6,526  60ft. 1,865  hraði. 117,5
Besti tími í sandi 4,762

Kveðja, Stefán Steinþórsson
sími: 866-9282   e-mail: dodge@ba.is