Author Topic: Íslandsmót í drifti 2017 - 4. umferð  (Read 1781 times)

Offline SPRSNK

  • Stjórn KK
  • Staged and NOS activated
  • *****
  • Posts: 1.807
    • View Profile
Íslandsmót í drifti 2017 - 4. umferð
« on: July 20, 2017, 01:39:28 »
Föstudaginn 21. júlí fer fram fjórða umferð íslandsmótsins í drift.
Skráningu lýkur þriðjudaginn 18. júlí kl 23:50, seinni skráningu lýkur föstudaginn 21. júlí kl. 15:00

Til að taka þátt þarftu að hafa:
Gilt ökuskírteini
Skoðaðan bíl
Hjálm
Vera meðlimur í akstursíþróttarklúbb innan AKÍS
Skráð ökutæki þurfa vátryggingarviðauka

Keppnistæki:
Öll keppnistæki skulu vera lekafrí, Leki einhver vökvi úr keppnistækinu verður því ekki gefin keppnisheimild

Skráningarfrestur.
Skráningu lýkur þriðjudaginn 18. júlí kl. 23:50
Seinni skráning verður leyfð til föstudagsins 21. júlí kl 15:00 en þá bætast 2.000 kr. við keppnisgjald.

http://skraning.akis.is/keppni/68

Keppnisgjald:
ATH!! skráning telst ekki gild fyrr en keppnisgjöld hafa verið greidd
Keppnisgjald 6.000 kr, innifalið er keppnisskírteni
Keppnisgjöld eru greidd á skráningarsíðu AKÍS

Dagskrá:
Mæting keppenda 16:30-17:00
Pittur lokar 17:00
Skoðun 16:30 - 17:30
Keppandafundur 17:30
Æfingar 17:45 - 19:45
Forkeppni 20:00 - 21:00
Keppni 21:15 - 23:00
Verðlaunaafhending 23:30

Nánari upplýsingar
í síma 8473217 eða jonbjarni@kvartmila.is
Jón Bjarni