Author Topic: Félagsgjald 2017 - breyta tegund  (Read 2307 times)

Offline SPRSNK

  • Stjórn KK
  • Staged and NOS activated
  • *****
  • Posts: 1.807
    • View Profile
Félagsgjald 2017 - breyta tegund
« on: January 21, 2017, 02:12:24 »
Greiðsluseðlar vegna félagsgjalda í Kvartmíluklúbbnum hafa verið sendir í netbanka.
Félagsmenn fá sent í netbanka sama félagsgjald og þeir greiddu í fyrra.

Félagsgjöld skiptast í eftirtalda flokka:
Almennt gjald er kr. 5.000
- Inneign á skírteini kr. 7.500 á móti aðgangseyri
GULL félagsgjald er kr. 15.000
- Inneign á skirteini kr. 25.000 á móti aðgangseyri og/eða æfingagjaldi
PLATÍNU félagsgjald er kr. 35.000
- Inneign á skírteini fyrir allar æfingar og keppnir sem þátttakandi eða áhorfandi

Þeir sem vilja færa sig í aðra gjaldategund en greiðsluseðill ber með sér í netbankanum hafi samband við gjaldkera KK - netfang ingimundur@shelby.is

Ef valið er að uppfæra almennt gjald í GULL þá er hægt að óska eftir breytingu á greiðsluseðli úr 5.000 kr. í 15.000
Ef valið er að uppfæra almennt gjald í PLATÍNU þá er hægt að óska eftir breytingu á greiðsluseðli úr 5.000 kr. í 35.000
Ef valið er að uppfæra GULL gjald í PLATÍNU þá er hægt að óska eftir breytingu á greiðsluseðli úr 15.000 kr. í 35.000

Hafi greiðsluseðill þegar verið greiddur er hægt að óska eftir nýjum greiðsluseðli í netbanka
eða greiða mismuninn á bankareikning Kvartmíluklúbbsins: 0544-26-111199, kt.: 660990-1199.
Einnig er hægt að greiða félagsgjald í netverslun klúbbsins á heimasíðu: http://kvartmila.is/is/vorur