Author Topic: Íslandsmót í drifti - laugardag 27. ágúst 2016  (Read 2144 times)

Offline SPRSNK

  • Stjórn KK
  • Staged and NOS activated
  • *****
  • Posts: 1.807
    • View Profile
Íslandsmót í drifti - laugardag 27. ágúst 2016
« on: August 23, 2016, 13:09:21 »
Laugardaginn 27. ágúst fer fram sjötta umferð íslandsmótsins í drifti.

 Skráningu lýkur þriðjudaginn 23. ágúst kl. 23:50, seinni skráningu lýkur föstudaginn 26. ágúst kl. 15:00

 Til að taka þátt þarftu að hafa:
 Gilt ökuskírteini
 Skoðaðan bíl
 Hjálm
 Vera meðlimur í akstursíþróttaklúbb innan AKÍS
 Skráð ökutæki þurfa vátryggingarviðauka

 Keppnistæki:
 Öll keppnistæki skulu vera lekafrí, Leki einhver vökvi úr keppnistækinu verður því ekki gefin keppnisheimild

Skráningarfrestur.

 Formlegri skráningu lýkur þriðjudaginn 23. ágúst kl. 23:50
 Seinni skráning verður leyfð til föstudagsins 26. ágúst kl 15:00 en þá bætast 2.000 kr. við skráningargjald.
 Skráning fer fram á vef AKÍS: http://ais.fjarhus.is/keppni/18

 Keppnisgjald:
 Skráning telst ekki gild fyrr en keppnisgjöld hafa verið greidd. Keppnisgjald 7.000 kr., innifalið er keppnisskírteini. Keppnisgjöld eru greidd á skráningarsíðu AKÍS

 Aðgangseyrir fyrir áhorfendur er kr. 1.000
 Frítt fyrir félagsmenn gegn framvísum félagsskírteinis.
 Frítt fyrir börn 12 ára og yngri í fylgd með fullorðnum.
 Keppendur fá afhent 3 armbönd, fyrir sig og tvo aðstoðarmenn.

 Dagskrá:
 Mæting keppenda 10:00-10:15
 Pittur lokar 10:15
 Skoðun 10:00 - 10:50
 Keppendafundur 10:55
 Æfingar 11:10 - 13:45
 Forkeppni 14:00 - 15:00
 Keppni 15:15 - 17:00
 Verðlaunaafhending 17:15

 Nánari upplýsingar í síma 8473217 eða jonbjarni@kvartmila.is
 Jón Bjarni



https://www.facebook.com/events/917045634999035/