Sæll Ingimundur,
Þú ert að benda á vandamál sem ég held að öll íþrótta- og tómstundafélög sem halda úti opnum vefsíðum eru að glíma við sem er að færra fólk er að setja inn minna efni á síðurnar þeirra en var fyrir nokkrum árum og þeir félagar sem sinna síðunum eru að gera það í ólaunuðu sjálfboðastarfi sem er svo sem allt í lagi.
Ein höfuðskýringin á þessu er að síður eins og Facebook hafa tekið við því hlutverki sem ágætar síður eins og þessi höfðu áður. Spurningin er hvernig er hægt að bregðast við því? Ég hef sinnt síðu Bílaklúbbs Akureyrar töluvert undanfarin ár og þar erum við líka að sjá færri pósta en fyrr. Til að skoða hvað til væri í tilgátu minni um að fólk væri meira að skoða efnir á Facebook heldur en á síðunni okkar þá tók ég mig til og þýddi nokkra þætti úr bókinni "Bílagaurar og baunateljarar" eftir Bob Lutz. Ég setti þessar þýðingar inn á ba.is síðuna og það skoðuðu þetta nokkrir en traffíkin var samt lítil. Svo setti ég hlekk á þessar þýðingar inn á eina íslenska gömlubílasíðu á Facebook og þá fór skriða af stað og núna hafa þessar þýðingar fengið meira en eitt þúsund innlit. Þetta er því ein leið til að auka traffík inn á síður bílaklúbbanna.
Annar möguleiki er að sameina síður eins og kk og b.a. síðuna, þó þannig að þessir bræðraklúbbar hafi hver um sig sérstöðu eða sér hólf innan þeirra. Ég er viss um að sumum lýst alls ekkert á svona sameiningu en ég bið þá um að koma með eitthvað annað en tilfinningarök fyrir því. Við Íslendingar látum oft eins og við séum 33 milljónir þegar við erum ekki einu sinni 330.000. Með sameiginlegri síðu væri reynandi að fá nokkra góða penna úr þessum félögum til að halda úti dálkum eða umræðum og hefja þessar síður þar með á það plan sem þær eiga skilið að vera á.
Góðar stundir,
Ragnar