Author Topic: Reglur fyrir KING OF THE STREET 2011  (Read 2551 times)

Offline Jón Bjarni

  • Administrator
  • On the bumper looking at god
  • *******
  • Posts: 111.750
    • View Profile
    • Myndirnar mínar
Reglur fyrir KING OF THE STREET 2011
« on: December 13, 2010, 20:03:47 »
Hér eru reglurnar sem verða notaðar á næsta ári í kots.

Quote
                                  KING OF THE STREET 2011
Keppnislýsing:
Þetta er keppni fyrir götubíla. Leyfilegt eldsneyti er eingöngu það sem selt er á bensínstöðvum til almennings. Það verður fylgst með því að menn séu að nota löglegt eldsneyti.Öll íblöndunarefni svo fsem oktan booster ofl. bönnuð.

Allir flokkar eru keyrðir á PRO TREE  (öll gulu ljósin kvikna samtímis) og ræst á jöfnu.

Tæki skulu standast bifreiðaskoðun á staðnum,frávik eru leyfð á hávaða frá pústi,hvarfakútum,viðvörunarþríhyrningur  og keppnisdempurum að öðru leiti skal standast fulla skoðun,púst skal ná út fyrir yfirbyggingu samkvæmt skoðunarhandbók, neyðarhemill , rúðuþurkur, annað sem er krafist í skoðunarhandbók verður að vera til staðar og standast skoðun.

Dekkjabúnaður bíla verður að vera  DOT eða E merktur.

Hoosier Q.T.P og M/T  ET Street og sambærileg, hámarkstærð 28X12.50

Hoosier og M/T og sambærileg  Drag Radial, hámarkstærð P325/50 (28 X 13.50)

(dekkjatakmarkanir gilda ekki í jeppaflokki)


Keppt verður í sex flokkum á bílum og fjórum flokkum á mótórhjólum.

Bílaflokkar.
Bílar með drifi á einum öxli keppa í 4 flokkum:
4 sílendra
6 sílendra
8+ sílendra yngra en 1985
8+ sílendra eldra en 1985

Fjórhóladrifnir fólksbílar keppa í einum flokk:
4x4 flokkur

Jeppar og pallbílar keppa í einum flokk:
Jeppaflokkur

Mótorhjól:
Racerar
799cc og minni
800cc og stærri
Hippar
999cc og minni
1000cc og stærri

Einnig verða neðangreindir flokkar keyrðir, en þeir gilda ekki til titilsins King of the street.

Outlaw street - keyrður 1/4 mílu ,þessi flokkur er ætlaður þeim sem bílum sem eru á númerum en standast ekki  bifreiðaskoðun/flokkaskoðun á staðnum vegna t.d slikka,ófullnægjandi pústkerfis o.s.f.v  og keppa um titilinn OUTLAW KING OF THE STREET.

Opinn flokkur- keyrður 1/8 og er hefðbundin bikarkeppni.
Allt leyft,ætlaður dragsterum og bílum sem ekki eru á númerum.
Jón Bjarni Jónsson - Upplýsingarfulltrúi Kvartmíluklúbbsins
BMW 530D MR.X editon