Núna styttist í stórsýningu Kvartmíluklúbbsins,
Snigla og BÍKR, Burnout 2010.
Þetta er 35ára afmælissýning hjá KK,
en sýningin verður haldin í Kauptúni í Garðabæ,
helgina 30.apríl - 2.maí.
Nú sem fyrr vantar okkur aðstoð,
þ.e.a.s. okkur vantar starfsfólk á sýninguna.
Þá er verið að tala um fólk í gæslu á gólfi, miðasölu,
og annað tilfallandi.
Við komum til með að keyra þetta á vöktum,
vaktaplanið er ekki alveg komið á hreint.
En okkur vantar sem flesta, sem hafa áhuga
og tíma til.
Tilvalið tækifæri til að kynnast fólki og hafa gaman.
Ef þið hafið áhuga á leggja hönd á plóginn endilega
hafið samband við mig.
Þannig að fram komi nafn, sími og hvenær fólk getur verið á svæðinu.
Fyrir hönd sýningarnefndar KK
Arnar B. Jónsson (Addi)
s. 694 7067
addicamaro@hotmail.comnú eða bara PM hérna á síðunni.
Vonast til að heyra frá sem flestum