Þetta er ekki vél úr Fiero sem er í bílnum og enginn virðist vita hvaða vél þetta er nákvæmlega.
Þetta er einhver gömul blöndungsvél úr GM bíl.
Ég hef allar þær upplýsingar fyrir hendi um original Fiero vélina og er með eina svoleiðis 2.8L V-6 með 5 gíra kassa tilbúna til að skella í ef ég vildi hafa bílinn sem næst original.
Annars þá er bíllinn svo gott sem klár fyrir skoðun. Þar sem kreppan lenti í veskinu hjá mér þá ætla ég að geyma sprautun eitthvað aðeins.
Býst við að setja bílinn á númer eftir páska.
Sæll Nonni,það virðist vera svolítð að erfitt sé að komast yfir rétt info um réttu vélina sem þú ert með lausa í höndunum ég er búinn að leita víða á erlendum spjallborðum og annarstaðar líka!,Þú talar um gamlan 2.8,LGM motor með blöndung þá er það annað hvort upp úr S10/GMC/Firebird/Camaro!,Þá er bara tvennt sem kemur til greina!,Þá ertu annað hvort með 2,8L eða 3,1L vélina nema að einhver hefur vippað blöndungs milliheddi + heddum yfir á 3,4L vélina?..,Fyndu á blokkini Casting.nr en þó að þú fynnir það þá er ekkert víst að það sé neitt að marka?..því að það sem ég kemst næst í að fynna þá er þetta allt sama blockin enn enn í mysmunandi bor og henni var breitt eftir '85 vegna þers að sveifarásinn í eldri 2,8 vélunum átti það til að brotna í sundur fyrir miðju->(verksmiðju galli!),Enn árið '86 styrktu þeir vélina með að breita um ummál á höfuðlegum semsagt sverara og sterkara->mains á sveifarás!,Fynndu blockar númerið á vélini sem þú ert með lausa,þá verður kanski mun auðveldara að komast að réttum bor!,Enn samt er það alls ekkert víst vegna þers að allar þessar 3-stærðir af þessum vélum bera víst flest allar sama Casting.nr eftir því sem ég kemst næst í að fynna!.
Enn sama hvað sem því lýður þá hafa þessar vélar sem ég hef átt í gegn um tíðina bara hent strax á haugana!,Enn samt þegar maður les og skoðar um þessar vélar í dag þá er hægt að preppa þær annsi vel upp allavegana nú í dag miðað við það sem maður er búinn að lesa og sjá um þessar vélar=2,8L/3,1L/3,4L kv Bjarki P