Hér eru menn að dissa merkilegan Mopar en hafa ekkert fyrir því að kynna sér málið. Hér er nefnilega um að ræða mjög merkilega tilraun sem Chrysler gerði 1963
Vélin í þessum bíl snérist 60.000 sn/mín. Hún gekk á allskonar eldsneyti, bensíni, dísel, þotueldsneyti og jafnvel jurtaolíu. Einna best gekk hún á tequila. Það var ekki talið að þyrfti að skipta um olíu á henni vegna þess að engar brunaagnir úr sprengirými gátu blandast vélarolíunni. Hún var nú ekki aflmikil (163 bhp) en betra tork (425 lbs./ft.). Bíllinn náði 100 km á 12 sek. Þessi vél þurfti lítið viðhald vegna þess að í henni var engin kveikja og ekkert vökvakælikerfi. Hún framleiddi engan kolsýrling en nóg af nituroxíði sem er eiturefni. Ekki tókst að hemja þá framleiðslu og varð það öðru fremur til að gera útaf við þessa merkilegu tilraun, auk þess sem bíllinn sándaði eins og risastór ryksuga.
Err.