Author Topic: Nýr vefur Bílar & Sport  (Read 1254 times)

Offline Bílar og Sport

  • Playing NHRA on playstation
  • *
  • Posts: 1
    • View Profile
Nýr vefur Bílar & Sport
« on: July 12, 2008, 19:33:00 »
Kæru félagar

Nú vorum við að koma upp nýjum vef á slóðinni www.bilarogsport.is

Vefurinn er í takt við blaðið, um bíla og mótorsport. Markmiðið gagnvart mótorsportinu er það sama og áður, koma því á framfæri og gera það aðgengilegt fyrir sem flesta. Ég vona að kvartmílufólk taki síðunni vel og við getum verið í góðu samstarfi með að koma þar kvartmílunni á framfæri. Ég mun reyna að fylgjast vel með og uppfæra á vefnum ef það eru keppnir eða aðrir viðburðir á dagskrá. Þó er gott að fá sendar slíkar tilkynningar, myndir eða ábendingar. Ég hafði hugsað mér að senda þetta bara á stjórnina, en það eru allir samtaka í þessu sporti og öllum velkomið að senda á okkur ábendingar.

Síðan viljum við líka óska eftir liðtækum aðila á myndavél, til að fylgja eftir keppnum fyrir Bílar & Sport á brautinni. (þegar veður leyfir :cry:)

Endilega sendið mér póst á thordur@bilarogsport.is

Þórður F. Sigurðsson
Ritstjóri Bílar & Sport