Author Topic: Chevrolet Corvette C5 árgerð 2001 á bull verði kr. 3290 þús!  (Read 1439 times)

Offline spiderman

  • Playing NHRA on playstation
  • *
  • Posts: 18
    • View Profile
Upplýsingar um bílinn
Bíllinn kom á götuna árið 2001 í USA, hann er skráður 2001 módel í Carfax en í eigandahandbók og fleiri gögnum er hann skráður 2002 módel. Ég er fjórði eigandi en náunginn sem seldi mér bílinn í janúar sl. var búinn að eiga hann síðan sumarið 2003.

Bíllinn kallast Corvette Coupe og er með glertoppi sem hægt er að taka af. Hann er í mjög góðu standi enda einungis keyrður 39 þúsund mílur. Krafturinn í þessu er ótrúlegur enda vegur bíllinn bara 1458 kg og búinn 5,7 lítra V8 (LS1) vél sem skilar 350 hestöflum og togar 360 lb-ft við 4.400 snúninga. Skv. uppgefnum tölum á netinu nær C5 sjálfskiptur 100 km hraða á 4,9 sekúndum.

ATH þessi bíll er 2001 módel og því með Second-Generation Active Handling system sem er nú standard í öllum Corvettum. Auk þess er 2001 bíllinn 350 hestöfl í stað 345 hö í 1997-2000 bílunum. Mesta breytingin var þó aukið tog á lægri snúning, en með smávægilegum breytingum og auknu loftflæði var unnt að gera sjálfskiptan 01 bíl jafn sprækan og beinskiptan 00 bíl.

Þetta er vel útskýrt hér

• 300 lb-ft is delivered at 1,000 rpm - 400 rpm earlier than before
• 320 lb-ft is delivered at 1,400 rpm - 800 rpm earlier than before
• 340 lb-ft is delivered at 2,500 rpm - an amazing 1,400 rpm earlier than before
• Maximum torque of 360 lb-ft for automatics, 375 lb-ft for manuals, arrives at 4,400 rpm.

Bíllinn er Navy blue metallic og er lakk nokkuð gott þó ekki veiti af að gusa á stuðarann eftir grjótkast. Felgurnar kallast Y2K Thin Spokes og eru að mínu mati þær fallegustu sem fengust frá GM á þessum tíma.

Bíllinn er mjög vel búinn og má þar nefna:

Bose hljóðkerfi
Skjávarpi sem varpar hraðamæli og öðrum upplýsingum á framrúðuna
Rafmagn í öllu með minni
Tölva sem sýnir fáránlegustu upplýsingar


Verð

Ásett verð er kr. 4.390.000,-

Fæst á kr. 3.290.000,- stgr.


Það þýðir ekkert að bjóða mér 3 milljón króna bíl uppí staðgreiðsluverðið og ég hef engan áhuga á jafndýrum bílum eða dýrari. :!:

Það er ekkert áhvílandi og það stendur ekki til að setja lán á þennan bíl þannig að kaupandi verður að redda því sjálfur, TM lána hins vegar út á bílinn.

Upplýsingar:
Í PM
Í síma 6973379
Netfang olafur@logretta.is




















Lexus IS 300 árg. 2002